Haukurinn Lindsey Graham og annað slúður

 

Lindsey Graham ásamt Zelensky

Ég veit ekki hve margir þekka Lindsey Graham? En þeir sem fylgjast með erlendum fréttum, þekkja hann vel. Hann er ansi hávær öldungadeildarþingmaður Republicana frá Suður Carolina.

Hann er svokallaður senior United States senator og er afar háttsettur innan Republicanaflokksins... þegar hlustað á er á manninn, þá kemur í ljós að maðurinn er hreinlega með stríð á heilanum. Hann talar út og suður um stríð sem Bandaríkjamenn eigi að heyja. Hann talar fyrir að ganga frá Íran.

Honum er einstaklega illa við Rússa og talaði fyrir að leysa upp Rússneska sambandslýðveldið. Og hann fagnaði gríðarlegum viðskiptaþvingunum á Rússa 2022 og taldi að þar með væri hægt gera landið gjaldþrota og leysa upp Rússland og skipta landinu í nokkur ríki sem stjórnað væri af Vestrinu og hægt væri að komast yfir auðlindir Rússlands.

Hann talar líka hátt um að ganga frá Kína á sama hátt. Fyrst Rússland og síðann Kína.... tveir fyrir einn....einn pakki.

Hann talar fyrir að setja 500% toll á Evrópu, ef þau hætta ekki viðskipti við Rússa. En þrátt fyrir 17 viðskiptaþvinganapakka Brussels, þá eru ennþá gríðarleg viðskipti á milli ESB og Rússlands, og þá með olíu og gas.

Afleiðingar að slíkum tollum yrðu stjarnfræðilegar fyrir Evrópu og reyndar heiminn allann..

Graham, talar þvert gegn stefnu Trumps og sérstaklega með Úkraínustríðið sem Trump vill losna við, en á erfitt með losa sig, út af Djúpríki Bandaríkjanna.

Graham skilst mér hefur gefið í skyn að hann muni fara gegn Trump (impeachment) ef Trump hlýðir ekki. Ofan á þennan hauk, þá þarf Trump að fást við Mark Rubio utanríkisráðherra og Pete Hegseth varnarmálaráðherra, sem báðir eru haukar og vilja átök.

Sagt hefur verið að að þegar Biden var við völd, þá hafi völd Bandaríkjaforseta skerst og eru í dag í skötulíki, miðað við áður. Trump getur þó haft valdið til að reka og ráða ráðherra.

Hérna er skýringin afhverju Trump er ekki búinn að kúpla sig frá Úkraínustríðinu.

Það eru gríðarleg samsærisöfl í Washington sem vill ekki frið.

Helst að fara í átök við Rússa og Kínverja.

 

Ég lofaði slúðri. Lula forseti Brasilíu upplýsti frá samtali sínu við Biden.

Þegar Biden var varaforseti hjá Barak Obama. Joe Biden og Hunter Biden áttu/eiga viðskiptahagsmuni í Úkraínu. Það er vitað.

En þegar hann hitti Putin og Putin var þá ekki forseti heldur Dimitry Medvedev (forseti Rússlands 2008-2012) þá sagði Biden við Putin, að hann (Bandaríkin) vildu ekki að Putin yrði forseti aftur....

Sem sagt hreinlega bannaði honum að fara fram aftur... það verður að teljast ansi mikil afskiptasemi og inngrip inn í innanlandsmál annars ríkis að hreinlega skipa mönnum, hvað þeir eiga að gera.

En þetta er reyndar ekkert nýtt að Bandaríkin sem heimsveldi sé stjórnsamt.

Nema hvað Putin hafi brugðist við af stillingu, en sagt Biden að þegja og hætta afskiptaseminni. Þar með eignaðist Putin, óvin í Biden, sem hefur alla tíð síðann hatast út í Rússland. Og það skýrir kannski harðlínustefnu Bidens alla tíð.

Ögranir í að koma Úkraínu inn í Nato og að túnfæti Rússlands og í forsetatíð Biden, þá voru engar hömlur á vopnasendingum til Úkraínu. Meira að segja langdrægar eldflaugar. Biden fór yfir mörg rauð strik Rússa og á tímabili, þá lá við að upp úr syði og það yrði kjarnorkustyrkjöld.

Rússar fóru að tala um notkun kjarnorkuvopna og þeir sprengdu síðann ofursprengjuna “Oreshnik” í Úkraínu sem aðvörun, en þetta er langöflugast vopn sem er ekki kjarnorkuvopn. Trump sagði mörgum sinnum að leikið væri að eldinum og löndin á mörkunum að lenda í kjarnorkustyrkjöld.

En þetta er ekki búið. Haukar eins og Lindsey Graham ásamt Neocons í Brussel.

Gelta um alla fjölmiðla að stöðva verði Rússa og nýtt vígbúnaðarkapphlaup sé eina lausnin ….. Trump virðist vera eini sem vill leysa málin á friðsaman hátt.

Hann hefur meiri áhuga á tollastríðum en Úkraínu.

 

Það er annars merkilegt að það eru engar friðarhópar í Evrópu að tala fyrir friði eða fara í mótmælagöngur út af Úkraínustríðinu. Þvert á móti þá tala flestir Evrópuleiðtogar fyrir vopnvæðingu og það þurfi að fara í stríð við Rússa og sama gera fjölmiðlar. Áróðurinn er fáránlegur í ljósi þess að Rússland er kjarnorkuveldi og bara einn kjarnorkukafbátur þeirra gæti gert út um Evrópu. Svo afhverju þetta vopnaskak? Gæti það verið að sömu leiðtogar hafi sett álfuna í efnahagskreppu og orkuskort með því að loka á rússneska orku? Og í staðinn fyrir að taka ábyrgð á efnahagserfiðleikum í Evrópu, þá á bara að eyða meiru.

800 milljarðar Evra í herútgöld. Og íslenska ríkisstjórnin ætlar að taka þátt með því að verja 1,5% (70 milljarðar ISK) í herútgjöld. Og við erum ekki einu sinni með her.

 

Það er margt skrítið að gerast í heimsmálunum og öllu snúið á hvolf.

Fáar raddir um að slaka á og tala um frið.

En hvað gerir Trump? Svarar hann blöffi Lindsey Graham (impeachment) og segir sig frá Úkraínuverkefninu? Það er gríðarleg valdabarátta í Washington.

Þar allir eru að þrýsta á Trump að taka upp harðlínustefnu gegn Rússlandi.

Stefna er þegar misheppnuð, því Rússar eru með gríðarlegann hagvöxt og efnahagsuppbyggingu. Á sama tíma glímir Trump við 37 trilljarða skuldir og Evrópa líka. Kannski er það dæmigert að þegar efnahagserfiðleikar steðja að, að reynt er að dreifa athyglina í aðrar áttir... vopnaskak.

 Heimildir:

https://www.rt.com/news/618659-trump-adviser-graham-passport/

https://www.youtube.com/watch?v=Jk3-w4Z21Uk

 P.s.

Ofan á þetta hefur Steve Bannon blandað sér í Lindsey Graham málið.

US Senator Lindsey Graham should be thrown in jail or have his passport revoked for “stirring up” the Ukraine conflict, former adviser to President Donald Trump, Steve Bannon, has said.

Steve Bannon has accused Lindsey Graham of “stirring up” the Ukraine conflict by falsely promising US support to Kiev.

Þannig að það er gríðarlega valdabarátta í Washington.

 

 


Vandræða barnið ESB og embættismennirnir

 ESB er hnignandi ríkjasamband sem er í eðli sínu á sama stalli og Sovétríkin.

Evrópa er orkulaus eftir viðskiptastríð við Rússa, sem Evrópa tapaði.

Þýskaland sem er aðal driffjöður ESB er í kreppu og af-iðnvæðingu. Öfgastefnur í umhverfismálum og án ódýrar rússneskrar orku gerir ESB ósamkeppnishæft. Álfa án orku getur ekki haft heilbrigt og sterkt efnahagslíf.

10-20 ára hnignun er framundan. Við munum líka sjá óeirðir og fátækt framundan í Evrópu vegna slæmrar innflytjendastefnu, eða stefnuleysi.

Öll stærstu hagkerfi Evrópu eru í kreppu. Og þetta lið í Brussel vill þessi ríkisstjórn líma okkur við...

Ofan á þetta eru fréttir af öfgastefnu öfgavinstriflokka í Evrópu og árásir á lýðræðið. Rætt var að banna AFD í Þýskalandi og Le Pen í Frakklandi var útilokuð. Stofnandi Telegram var handtekinn og hann beðinn um að skipta sér af kosningum í Rúmeníu. ESB er stjórnað af embættismönnum, sem er alls ekki að hugsa um hagsmuni álfunnar, heldur eru hreinlega í öfga vinstri atktívista stefnu. Þeir vilja hervæða álfuna í stríð við Rússa, sem eru stærsta kjarnorkuveldi í heimi og myndi aldrei berjast við ESB á hefðbundin hátt. Einn kjarnorkukafbátur þeirra gæti eytt Evrópu. Svo að hervæðingin er fyrir djúpríkið... hergagnaframleiðendur.

Rússneskir fjölmiðlar eru bannaðir (hver er óttin við að heyra hina hliðina?), rætt hefur verið að banna Bandaríska samfélagsmiðla, en embættismennirnir þora því ekki út af Trump. Og nú er talað um að slaufa Evrópska blaðamenn og banna þeim að fjalla um Rússland eða heimsækja það. Þetta er allt í ætt við Fasisma, frekar en virðuleg bandalag. Síðann eru embættismennirnir í stríði við Fico í Slóvakíu, og Orbán í Ungverjalandi, af því þeim datt í hug að láta hagsmuna þjóða sinna ganga fyrir embættismennina í Brussel. J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna hélt fræga ræðu, þar sem hann benti að lýðræði færi hnignandi í ESB.

Skipbrot sósíaldemokratastefnu Brussels

Annað vandamál ESB er sósíalistastefnan og kerfið er stjórnað af örfáum embættismönnum sem enginn kaus. Minnir ansi mikið á Sovétríkin.

Það sem einkennir Sósíaldemokrataflokka. Er ofurskattlagning og skuldsetning. Þeir eru nefnilega ennþá kommúnistar og halda að peningar vaxi á trjánum.

Í þessu liggur kerfisvilla Sósíaldemokratismans...

Ofurskattheimta og ofsa þungt regluverk skemma þjóðfélög og bjóða upp á stöðnun.

Þar sem Sósíalistarnir tóku upp markaðskerfið inn líka, þá er þessi hnignunar þróun hægari. En hnignun er engu að síður í gangi.

Og kerfisvillann býður á endanum upp á gjaldþrot.

 

ESB er eitt stórt Woke og Cancel Culture samband. Þar sem ráðist er að frelsi einstaklinga og frelsi þjóðríkja til að hafa einhverja sjálfstjórn. Frelsi einstaklinga og þjóðríkja er barið niður með hörku. Þær þjóðir sem hlýða ekki eru einangraðar, sektaðar og hótaðar sbr. Ungverjaland og jafnvel Pólland.

Andlegt og líkamlegt ofbeldi er hluti af Sósíalismanum.

Ótrúlega þungt regluverk og stjórn er í Brussel, mynduð af embættismönnum, sem er ekki einu sinni lýðræðislega kosnir (dæmi Úrsula Van Der Leyen). Veldur því að sambandið er eitt stórt stöðnunarsamband.

Þeir vilja stjórna öllu í daglegu lífi einstaklingsins og berja niður þjóðríkið.

Það koma upp atburðir sem valda því að hugmyndafræðin og stefnan bíður gjaldþrot. Við sáum það með kommúnisma Sovétríkjana. Fallið..

Ofan á þetta er Evrópa í viðskiptastríði við Bandaríkin, og fær þannig að kenna á eigin meðulum, en ESB hefur sett met viðskiptaþvinganir á Rússa og þær gera ekkert annað en að skaða efnahag ESB enn frekar.

Allir vita og sjá þetta en enginn dettur í hug að breyta aktívistastefnu embættismennina.

 

Hvað getur Evrópa gert?

Jú, stokka upp á sósíalískt ESB, taka út embættismennina sem enginn kaus og hætta miðstýringunni og leyfa þjóðunum að vera með fullveldi sitt í friði.

Evrópa þarf að breytast í fríverslunarsamband, ekki miðstýrt ríkjasamband eins og Sovétríkin.

Brussel þarf að láta af afskiptum af einstökum þjóðríkjum og leyfa þeim að blómstra í friði. Fríverslunarsamningar eiga að blómstra. Og hætta styrkjum og forræðishyggju í efnahagsmálum.

EFTA er dæmi um fríverslunarsamband og ætti að vera fyrirmynd, við Íslendingar höfum góða reynslu af fríverslunarsamningum EFTA.

Frelsi einstaklinga, og þjóðríkja verður að tryggja til að Evrópa blómstri.

Evrópa hefur kannski ekki miklar náttúruauðlindir, en álfan hefur gríðarlegann mannauð. Og til að mannauður virki, þarf FRELSI EINSTAKLINGS að blómstra.

Frelsi er lykilorðið hérna. ESB er hafta bandalag, þess vegna eru að koma brestir í þetta Sovét. Það er talað um fjórfrelsi...Fjórfrelsi er hugtak sem vísar til frelsis til flutninga --- 1) fólks, 2) varnings, 3) þjónustu 4) fjármagns innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), innri markaðar Evrópusambandsins (ESB). Þetta er misheppnuð stefna.

 

Evrópuríkin þurfa frelsi til að ráða sínum málum. Og kannski er hægt að búa til létt regluverk eins og er hjá EFTA til að tryggja fríverslun og frjálst flæði fjármagns á milli landana. Þjóðríkið þarf að blómstra.

 Ég sé engin merki um að ESB breytist. Það þarf hrun til að ESB Sovétið, breytist. Og hrunið liggur í loftinu.... alveg eins og gerðist með Sovétríkin. Það hrun lá í loftinu í langann tíma.

 Íslendingar þurfa segja upp EES samninginum sem er reyndar hræðilegur.

Fáar tollaívilnanir, opin landamæri og endalausar íþyngjandi reglugerðarfargan og akvítvista stefna sem er að drepa allan efnahag.

Við þurfum sem sagt að breyta EES samninginum í TVÍHLIÐA FRÍVERSLUNARSAMNING.

Taka það versta úr EES saminginum og henda og halda því besta fyrir íslenska hagsmuni.

Þetta er mun einfaldara en margur heldur. Og við hættum að fá bull reglugerðir sem eiga enga samleið með íslenskum veruleika. Og helst vil ég fá alvöru fríverslunarsamning á borð við þann sem við erum með við Kína. Engir tollar helst...

Það er merkilegt að enginn íslenskur stjórnmálaflokkur er að tala um hve hroðalega slæmur EES samningurinn er og berjast fyrir tvíhliðasamningi. 

 

 


Valkvíði Trumps - harðlínuleiðin eða ekki

 Í dag eru tilgangslausar friðarviðræður og sýndarmennska í dag, á milli Rússa og Úkraínumanna í Istanbul. Þetta er leikþáttur til að friða vissa hópa harðlínumanna í Bandaríkjunnum og ESB.

Harðlínumenn Nato vilja hertari viðskiptaþvinganir á Rússa, sem munu ekki virka. Það er búið að þrautpína þá leið og Rússland er bara hreinlega sterkari efnahagslega með 4,3% hagvöxt í fyrra og svipaðann í ár....Trump veit að viðskiptaþvinganir virka ekki. En það er samt þrýstingur á hann.

En hvað gerir Trump?

Eina spurningin er.... Trump.... heldur hann áfram stuðningi við Úkraínu, eða mun hann láta sig hverfa og hugsa um stóru myndina?

Þ.e.a.s. hagsmunir Bandaríkjanna á heimsvísu. Engir hagsmunir í Úkraínu. Það er bara staðgengilsstríð.

Trump þarf að stöðva af-dollaravæðingu, og uppbyggingu BRICS undir forystu Rússa. Og hann þarf að koma í veg fyrir of náið samstarf Kína og Rússa, sérstaklega á hernaðarsviðinu. En Rússar hafa langöflugusta vopnabúr í heimi og kjarnorkuvopnabúr. Nú þegar er þegar viðræður Kína og Rússa um náið hernaðarsamstarf. Að Rússar og Kína séu orðnir svo nánir samstarfsaðilar er slæmt fyrir Bandaríska hagsmuni.

Hann þarf því að byggja upp betri samskipti við Putin... gera samstarf landana nánara. Gera Rússa háðari Bandaríkjamönnum. Og mikið hefur verið rætt um að aflétta viðskiptabanninu og láta Rússa fara að nota Dollarann aftur og tengjast Rússum efnahagslega. Sendinefndir hafa verið skipaðar sérstaklega vegna þessa.

Þannig gæti Trump haft eitthvað tangarhald á Rússum, gegnum viðskipti. Eitthvað til að þrýsta á þá. Trump og Rubio hafa hreinlega viðurkennt opinberlega að þeir hafa lítið til að þrýsta á Rússa.

Trump hefur sem sagt ekkert “leverage” tangarhald á Rússlandi. Ekki efnahagslega eða á hernaðarsviðinu. Því verður hann að klára Úkraínustríðið sem er fyrir í heimsmynd hans. Þriggja póla heimur þar sem Bandaríkin, Rússland og Kína hafa sín áhrifasvæði.

En hvað gerir Trump? Heldur hann áfram stuðningi við Zelensky og tapað stríð í Úkraínu? Og fer þannig í sögubækurnar sem forsetinn sem missti allt samband við Rússland og Úkraína fell undir hans vakt? Það gæti skýrt afhverju hann vill semja um frið. Hann færi þá í sögubækurnar sem friðarforsetinn sem endaði staðgengilsstríð Bidens.

Fari hann hinsvegar harðlínumanna leiðina og býr til fleiri viðskiptaþvinganir á Rússa (sem geta ekki virkað). Þá fer hann í sögubækurnar með misheppnaða utanríkisstefnu. Hann þarf sárlega að vera í samskiptum við Rússa um fjölda heimsmála. Það eru hagsmunir um allann heim... Úkraína er aukaatriði í heimsmyndinni og engir Bandarískir hagsmunir þar. Nema þá kannski hagsmunir Biden fjölskyldunnar í Úkraínu og viðskipti fjölskyldunnar þar.

Trump gæti gengið frá stríðinu óskaddaður, með því að draga sig í burtu frá friðarviðræðum... og hann myndi segja:

Þetta er Biden stríð, hann byrjaði stríðið, ég reyndi að stilla til friðar. Núna þarf ég að hugsa um heimsmyndina og einbeita mér að Bandarískum hagsmunum.”

Trump er í tollastríði. Þar er áhugi hans og hagsmunir Bandaríkjanna. Land með 37 Trilljarða skuldir og í efnahagsvandamál. Mun hann hlusta á harðlínumenn í Washington og Brussel embættismannaklíkunnar? Lausnin er svo augljós að hann hlýtur að sjá að hann ætti að draga sig frá friðarviðræðum, og ganga í burtu, eins og hann hefur oft hótað. Forsetatíð og sögubækurnar munu verða skrifuð eftir hvaða ákvörðun hann tekur

P.s. varðandi árásir Úkraínumanna á flugvelli Rússa í gær, og þeir misstu 13 sprengjuflugvélar..þá er ýmislegt að koma í ljós. Afhverju voru Rússar svo gálausir að láta sprengjuflugvélar vera undir berum himni, en ekki flugskýlum í miðju stríði? Jú, skýringin er að Bandaríkjamenn og Rússar gerðu sáttmála sín á milli, en sáttmálin segir að sprengjuflugvélar á ákveðnum flugvöllum skuli vera undir berum himni og hægt sé að skoða frá gervihnöttum. Zelensky vissi um þetta og Bandaríkjamönnum var sagt frá fyrirhuguðum árásum fyrirfram. En... þeir gerðu EKKERT... þrátt fyrir að verið væri að brjóta sáttmálann.



 

 


Lestar harmleikurinn í Rússlandi – hryðjuverk

 Lægra er ekki hægt að leggjast en að ráðast kerfisbundið gegn óbreyttum borgurum... nokkuð sem er gegn Genfarsáttmálanum.

Sprenging á brúm í Brjansk og Kursk héruðum:
Lestarslys í Bryansk héraði:
Vegbrú sprengdist beint fyrir ofan á járnbrautarteinana — lestin skall á rústunum;
7 manns létust, 69 farþegar slösuðust, þar á meðal 8 mánaða gamalt barn (sem var flutt til Moskvu til aðhlynningar);
Rannsókn á hryðjuverkum hefur verið hafin og vill landsstjóri Bryjansk meina um hryðjuverk sé að ræða

Brúarhrun í Kursk héraði:
Rannsóknarmenn staðfestu að brúin var vísvitandi sprengd — líklega með tilbúnum sprengibúnaði;
Ein af stoðunum skemmdist, sem olli því að spennan hrundi;
Lestarlest og þrír járnbrautarvagnar fóru af sporinu;
 Einn maður slasaðist — lestarstjórinn slasaðist á fæti.

Atvikin sem tengdust sprengingum á járnbrautum í héruðunum Bryansk og Kursk hafa verið flokkuð sem hryðjuverk, að sögn rússneska rannsóknarnefndarinnar.

 

Zelensky er því komin í hryðjuverk gegn óbreyttum borgurum. Þarna er vísvitandi verið ráðist að óbreyttum borgurum. Zelensky verðu liklega flokkaður sem hryðjuverkamaður og eltur uppi slíkur af Rússum. Þolinmæði Rússa hlýtur að þrjóta.

Ekki fyrir löngu, þá tók Zelensky óbreytta borgara sem gísla frá Kursk og notaði í fangaskiptum við Rússa. Slíkt er algjörlega gegn Genfarsáttmálunum að nota óbreytta borgara sem gísla. Alþjóðasamfélagið sagði ekkert, engin gagnrýni..

Í fyrra voru 150 óbreyttir borgarar drepnir í verslunarmistöð í Moskvu, Crocus City Hall, böndin bárust að Úkraínsku leyniþjónustunni og yfirmanni hennar Butanov.

 Hetjan Zelensky er sem sagt kominn í hryðjuverk og verður liklega meðhöndlaður sem slíkur. Hann er umboðslaus forseti síðann í fyrra og hefur því enga vernd sem þjóðhöfðingi.. hann er bara óbreyttur borgari og einræðisherra sem er kominn í hryðjuverk.

Heimildir:

https://en.wikipedia.org/wiki/Crocus_City_Hall_attack

 

 


Alþingi verður að deila völdum með þjóðinni

 Eftir að hafa skoðað stjórnmálasögu Íslands.... þá virðist ekki skipta máli, hvað stjórnmálaflokkar kalla sig, hægri eða vinstri.... það er enginn munur á stefnu þeirra.

Þeir stjórnast af hagsmunum flokkana, frekar þjóðarinnar.....

Það er eitthvað þögult samkomulag á milli þeirra að halda hlutunum óbreyttum.

Við sáum þetta 2012, þegar við reyndum að breyta um stjórnarskrá og koma að beinu lýðræði og láta stjórnamálamenn deila völdum með þjóðinni.

Þeir gleyma undir eins og þeir komast á þing að þeir eru starfandi í umboði þjóðarinnar og VALDIÐ ER HJÁ ÞJÓÐINNI... ekki þeim.

Svo afhverju vilja þeir ekki koma á beinu lýðræði og deila völdunum?

Getur verið að kerfið hérna sé orðið of rotið og spillt, að allar breytingar séu bældar niður.  2012 þjóðaratkvæðagreiðslan var eitt dæmi um slíkt.

Þar kom fram skýr vilji þjóðarinnar að fá meiri völd í gegnum þjóðaratkvæðagreiðslur.

Ofan á þetta hefur hratt og örugglega hefur verið að sneiða fullveldi Íslands niður, innan veggja EES, þrátt fyrir að engar heimildir eru til í Stjórnarskránni fyrir slíku fullveldisafsali.

ÁN FULLVELDI ER EKKI LÝÐRÆÐI...

Á Íslandi búum við hálflýðræði. Það kallast fulltrúalýðræði.

Þar eru ákveðnir aðilar eru kosnir í gegnum flokkakerfi og til þess að vera umboðsmenn ákveðins hóps kjósenda. Í gegnum þingflokkana erum við því með FLOKKSRÆÐI.

Fulltrúinn og flokkræðið, bjóða upp á mikla spillingu. Enginn veit hvernig stjórnarmynstrið verður eftir kosningar, og fulltrúar veljast í gegnum flokksræðið inn í valdastöður flokkana og ef kjósandi ætlar að kjósa flokk, þá gæti hann endað með að fá á sig vanhæfan fulltrúa, sem hann hefur engan áhuga að kjósa, en verður að kjósa með, ef hann vill fá flokkinn í stjórn.

Fulltrúinn, er vanalega ekki að hugsa um að vera umboðsmaður/fulltrúi, kjósenda sinna.

Heldur er hann upptekinn að hugsa um sérhagsmuni og hagsmuni flokksins, umfram hag kjósenda sinna.

Fulltrúalýðræðið býður því upp á mikla spillingu sérhagsmuna og baktjaldamakks.

Til eru lausnir við þessu:

  1. Beint lýðræðiskerfi

  2. Persónukjör

Fyrir lýðræðislegann markaðssinna eins og mig, þá er beina lýðræðið og persónukjör, einmitt í anda frelsi einstaklingsins til að ráða eigin örlögum og fá að kjósa einstaklinga til að vera fulltrúi sinn.

Alþingi verður að deila völdum með þjóðinni. Stjórnarfarið hérna er í mikill stöðnun.

Og stjórnamálamenn eru hreinlega hættir að hlusta á fólkið...
En býður kerfið upp á, samtryggingu þeirra. Svo þeim er nkl. sama...
Það er blaðrað í kosningabaráttu um fallega framtíð og loforð.
En allir vita að þetta er bara loforð sem ekki er ætlunin að standa við. Eina leiðin til að láta stjórnmálamenn standa við orð sín er í gegnum beint lýðræði. Málskotsréttur...

Að þjóðin geti gripið fram í hendurnar í málum sem eru hreinlega í gegn hagsmunum þjóðarinnar. Og oftast hefur það verið vegna EES samningsins....

 


Fríverslunarsamningur við Bandaríkin

 Það fer ekki framhjá neinum að Bandaríkin eru í viðskiptastríði við heimin. Hann tekur sérstaklega hart á þeim sem eru fjandsamleg Bandaríkjunum og tala illa um þau og vinna gegn Bandaríkjunum. Það þarf því að tóna niður alla gagnrýni og fjandsemi gegn Trump, sem er þó aðeins að gera sem hann var kosinn til... verja hagsmuni Bandaríkjanna.

Hann setti ofurtolla á flest ríki heimsins. En lágmarkstolla á Ísland eða 10%

En 10% bíta samt í, fyrir íslensku fiskvinnslufyrirtækin.

Allt telur. Og við erum með tolla á Bandarískar vörur. Afhverju?

Tollar hafa stundum verið hugsaðir sem tæki til að vernda innlenda framleiðslu.

En hvað er verið að vernda hérna? Við erum ekki að framleiða bíla og aðra hátæknivörur eins og við erum að flytja inn frá Bandaríkjunum.

 

Guði sé lof þá erum við með viðskiptahalla við Bandaríkin, svo skrítið sem það hljómar. En það gefur okkur svigrúm og er sennilega ástæða þess að við fengum aðeins 10% toll á okkur. Við erum að flytja inn meira en við flytjum út til Bandaríkjanna.

Tækifærið er núna. Trump gaf þjóðum 90 daga glugga til að semja upp á nýtt með tollafrelsi.

Ég veit ekki hvað er verið að gera? Er verið að semja á bakvið luktar dyr eða er ekki verið að gera neitt? Engar fréttir.

Tollar eru skattar á almenning, enn ein skattpíningin, þeir gagnast engum í endanum annað en að hækka vöruverð og gera lífið erfiðra.

Ísland er útflutnings og innflutningsland og er sárlega háð erlendum viðskiptum.

Því þarf að bretta upp ermarnar og fara í alvöru viðræður við Bandaríkin um að fella niður alla tolla. Byrjum fyrst....tökum niður alla tolla á Bandarískar vörur. Tölum síðan við Trump og segjum.... sjáðu við stigum fyrsta skrefið.

Það eru gríðarlegir hagsmunir í gangi fyrir Ísland að hafa góð viðskiptatengsl við Bandaríkin. Við misstum góðann markað í Rússlandi sem er í forsvari fyrir BRICS... þar er eitthvað sem við þurfum að laga líka. Og við þurfum að hugsa fram í tíman og gera fríverslunarsamning við BRICS blokkina.

Ísland á að vera hlutlaus þjóð í deilum stórveldana og hugsa um ÍSLENSKA hagsmuni fyrst og fremst og hagsmunirnir liggja í frjálsum viðskiptum.

 

 

 


UPPFÆRUM STJÓRNARSKRÁNNA...

 

 

Breytum stjórnarskránni

 

UPPFÆRUM STJÓRNARSKRÁNNA...
Við búum ekki við lýðræði. Það skýrir afspyrnulélegt stjórnarfar sem við höfum búið við frá upphafi. Stjórnarskráin er arfur frá konungstíma Dana og er í engum tengslum við nútímaraunveruleika.

Það þarf aðeins að breyta tveimur greinum og koma að málskotsrétti og persónukjör.
Fulltrúalýðræði, er ekki lýðræði, heldur hálf-lýðræði.
Við kjósum einhverja fulltrúa, og við höfum enga stjórn, hvernig ríkisstjórn við fáum, sem oftast er einhver samsuða, um eitthvað sem enginn vill. Útkoman er alltaf einhverjar málamiðlanir, sem er enginn stjórnun á landinu.
Flokksræði, býður upp á spillingu, og ómögulegt er að skipta út vanhæfum stjórnmálamönnum. Þaulsetnir þingmenn hafa setið á þingi í allt að fjórum áratugum.
Valdið kemur frá þjóðinni, ekki þingmönnum.

Og því er eðlilegt að þjóðin geti kosið í gegnum málskotsréttinn um mikilvæg mál og stöðvað glórulausar gjörðir þingmanna, sem oft eru ekki með Íslenska hagsmuni í húfi, heldur erlenda.
Fulltrúa"lýðræði" er óskapnaður sem telst ekki vera lýðræði.
Bara samanþjöppun valds, fárra útvalda, sem geta hangið á þingi í allt að fjóra áratugi, eins og dæmi segja til um.

Enn og aftur....

Valdið kemur frá þjóðinni... ekki alþingi.

 


Skilvirknisráðuneyti

Ísland hefur verið með 7 ára í hallafjárlög. Sem er ótrúlegt í ljósi þess góðæris sem hér hefur ríkt (fyrir utan Covdi svindlið)

Þetta segir mér að það eitthvað mikið að. Við vitum að hælisleitendamálin hafa kostað okkur tugi milljarða á ári, út af opnum landamærum.

En það er meira sem hangir á spítunni. Bara t.d. Við að búa til fráverandi ríkisstjórn voru bætt við 3 ný ráðuneyti! Afhverju? Til að friða liðið?

Ný nöfn á ráðuneyti voru fundin upp, sem fáir vita ennþá hvað heita og hvaða verkefni þau standa fyrir? Enda virðast mörg þeirra vera með verkefni sem skarast á. Fyrst þeir voru á annað borð að fjölda ráðuneytum, afhverju var þá ekki búið til SKILVIRKNIRÁÐUNEYTI?

 

Hvað er til ráða? Hvað ætla Trump og Elon Musk að gera?

After endorsing Trump in July, Musk quickly embraced the idea of helming a “Department of Government Efficiency” (D.O.G.E.) aiming to cut $2 trillion or more from the federal budget, while Trump has touted Musk as the so-called “Secretary of Cost-Cutting.”

 

Trump lofaði forstjóra Tesla að hann myndi stofna sérstaka „stjórnarskilvirkni“ nefnd eða ráðuneyti, kölluð DOGE, sem milljarðamæringurinn mun leiða ef Trump vinnur kosningarnar, sem og Trump gerði.
Elon Musk ætlar að gera bandarískt stjórnkerfi skilvirkari.
„Ég væri fús til að hjálpa til við að bæta skilvirkni stjórnvalda,“ sagði Musk. „Við erum með risastórt ríkisskrifræði, við höfum of mikið eftirlit, við höfum stofnanir sem hafa skarast ábyrgð, of mikið regluverk... þetta þýðir raunverulegan kostnað fyrir fólk, þetta er falinn kostnaður en hann er mjög verulegur.

Musk hét því á fundi Trumps í síðasta mánuði að hjálpa repúblikana að skera niður árleg fjárlög Bandaríkjanna um „að minnsta kosti 2 Trilljarða Bandaríkjadala“ sem hluti af endurskoðun alríkisstofnana sem hann myndi framkvæma ef Trump snýr aftur í Hvíta húsið.
„Skattapeningunum þínum er sóað og skilvirkni ráðuneytisins mun laga það,“ sagði Musk.

Hvað um Ísland? Hefur einhver tekið út Íslenskt stjórnkerfi?

Afhverju erum við með 63 þingmenn í örlitlu hagkerfi? 43 væru t.d. Alveg nóg.

Afhverju voru borgarfulltrúum fjölgað úr 15 í 23?

Hvað eru margir embættismenn á Íslandi og hvað eru þeir að gera?

Hefur einhver gert úttekt á hvað þeir eru að gera?

Afhverju erum við ekki með rafrænt stjórnkerfi eins og Eistar?

Hægt er að kjósa rafrænt og gera alla opinbera hluti rafrænt í Eistlandi.

Það er ótrúlegt á tímum Fjórðu iðnbyltingarinnar og AI tækninnar að ekkert skuli vera að fækka í opinbera geiranum.

Gervigreind er komið á þann stað hún getur gert allt, þar á meðal rekið heilt þjóðfélag.

Við lifum við mesta skattaokur í heiminum, skattpíndasta þjóð í heimi.

Vinstri flokkarnir, Samfylking, Viðreisn, Píratar, Sósíalistaflokkur Íslands, Framsókn og Flokkur fólksins lofa okkur hærri sköttum.

En ekki orð um að skera niður báknið og lækka skattbyrði okkar.

Enda þekkja þeir ekki regluna um að lægri skattar gætu gefið af sér stærri köku til samfélagsins og þar með meiri skattekjur. Gleymum heldur ekki vinstra reglugerðarfarganið, ímyndaða loftlagsvá og loftlagsskatta. Peningar sendir til vopnakaupa í Úkraínu. Af nógu er að taka í óráðsíu.

Hvernig aukum við skilvirkni í stjórnkerfinu, minnkum báknið og lækkum skatta og þar með velferð í þjóðfélaginu?

Og athugið að markaðskerfið er eina kerfið í heiminum sem hefur útrýmt fátækt.

Markaðskerfið sér líka um að reka velferðarkerfið, enda er einkageirinn rúinn inn að skinni og skattlagður. Ekki er ríkið að skapa peninga. Það eru einkafyrirtækin, frumkvöðlar, einyrkjar í rekstri sem eru að skapa verðmætin. Hárgreiðslufólk, smiðir, rafvirkjar, píparar o.s.frv. Það eru á fjórða tug þúsunda einyrkja á Íslandi. Samfylkingin talar um þetta sé fólkið með breiðu bökin og megi skattleggja.

 

Skilvirknisráðuneyti (ekki nefnd, þær eru alltaf svæfðar) myndi t.d. Vera tímabundið ráðuneyti.

Sem myndi sjá til þess að skera niður óþarfa ríkisbákn. Javier Milei Argentínuforseti er t.d. Að reyna að taka niður ríkisbáknið, en hann tók við gjaldþrota Argentínu.

Skattaokur, hallafjárlög segja okkur augljósa staðreynd....óskilvirkni í stjórnkerfinu.

 

Heimildir:

https://www.forbes.com/sites/dereksaul/2024/11/06/heres-what-elon-musk-may-do-in-a-trump-administration/

 

 


BEINT LÝÐRÆÐI OG PERSÓNUKJÖR.

.Ísland er ekki lýðræðiland að mínum dómi, hér ríkir hálflýðræði..

Hratt og örugglega hefur verið að sneiða fullveldi Íslands niður, innan veggja EES, þrátt fyrir að engar heimildir eru til í Stjórnarskránni fyrir slíku fullveldisafsali.

ÁN FULLVELDI ER EKKI LÝÐRÆÐI...

Á Íslandi búum við hálflýðræði. Það kallast fulltrúalýðræði.

Þar eru ákveðnir aðilar eru kosnir í gegnum flokkakerfi og til þess að vera umboðsmenn ákveðins hóps kjósenda. Í gegnum þingflokkana erum við því með FLOKKSRÆÐI.

Fulltrúinn og flokkræðið, bjóða upp á mikla spillingu. Enginn veit hvernig stjórnarmynstrið verður eftir kosningar, og fulltrúar veljast í gegnum flokksræðið inn í valdastöður flokkana og ef kjósandi ætlar að kjósa flokk, þá gæti hann endað með að fá á sig vanhæfan fulltrúa, sem hann hefur engan áhuga að kjósa, en verður að kjósa með, ef hann vill fá flokkinn í stjórn.

Fulltrúinn, er vanalega ekki að hugsa um að vera umboðsmaður/fulltrúi, kjósenda sinna.

Heldur er hann upptekinn að hugsa um sérhagsmuni og hagsmuni flokksins, umfram hag kjósenda sinna.

Fulltrúalýðræðið býður því upp á mikla spillingu sérhagsmuna og baktjaldamakks.

Til eru lausnir við þessu:

  1. Beint lýðræðiskerfi

  2. Persónukjör

Fyrir lýðræðislegann markaðssinna eins og mig, þá er beina lýðræðið og persónukjör, einmitt í anda frelsi einstaklingsins til að ráða eigin örlögum og fá að kjósa einstaklinga til að vera fulltrúi sínn.

 

Sviss er í mínum augum, fyrirmyndarríkið, sem ég myndi vilja að Ísland myndi feta í fótspor. Sviss sameinar tvennt sem er mér allra heilagast, beint lýðræði og markaðskerfi. Margir halda að Sviss sé svo ríkt vegna þess að þar sé skattaparadís, en það eru mörg ríki sem eru með skattaskjól. Panama, Kýpur og mörg önnur ríki. Svisslendingar ná að vera ríkasta þjóð í heimi, án náttúruauðlinda og eru með sterkt lýðræðiskerfi.

Öflugt heilbrigðiskerfi og besta stjórnmálakerfi í heimi.

 

Hérna eru nokkrar ástæður fyrir því að Sviss er ríkasta land í heimi:

  1. Decentralizion... Sviss er sambandsríki 26 kantóna, eina sem þessar kantónur eiga sameiginlegt, er sameiginleg stjórnarskrá, gjaldmiðil og utanríkisstefnu. Fyrir utan það, þá eru þau sjálfsstæð. T.d. Í skattheimtu, þá er t.d. Kantónan Jura með 14%, en ef þú býrð í kantónunni Zug, þá er tekjuskatturinn aðeins 4%. Kantónurnar hafa sjálfstæðan ákvörðunarrétt til verslunarhátta. Kantónurnar geta aðlagast að því umhverfi sem hver og ein er staðsett í. Og það sem meira er, ÞÆR GETA KEPPT VIÐ HVERJA AÐRA...
    Þrátt fyrir decentralizion, þá tekst þeim að halda þjóðríkinu saman og þrátt fyrir að þar eru opinberlega 4 tungumál. Hver kantóna er með sitt opinbera tungumál.

  2. Sviss hefur engann forseta...Svisslendingar kjósa til federal parliament (alþingi þeirra) þetta þing kýs síðann 7 fulltrúa, sem eiga að vera ráðherrar. Allir þessir 7 einstaklingar hafa nkl. Sömu völd. Einn þeirra er síðan valin til árs senn að vera í forsvari fyrir hópinn (allir jafnir þó) Switzerland international representitive. Tæknilega séð er hann “forseti” en er þó ekki með meiri völd en hinir sex. Og þeir skiptast á, árlega um persónu.

  3. Beint lýðræði...Svisslendingar halda þjóðaratkvæðagreiðslur á 4 mánuða fresti, bæði innan kantóna og svo Svisslandi öllu. Til kantónu, þarf aðeins 50.000 manns til að biðja um atkvæðagreiðslu, en fyrir landið allt, þarf 100.000 atkvæðabærra manna.

  4. Frjáls markaður...Svisslendingar reyna að gera fríverslunarsamninga við svo til öll ríki heimsins. Svisslendingar hafa haft frjáls viðskipti við lýði síðan 1874 og hafa því langa sögu að baki, ólíkt öðrum ríkjum, sem eru nýlega að taka upp frjáls viðskipti.

  5. Hlutleysi...með hlutleysi sínu, þá ná þeir frjálsri verslun, sem aðrir ná ekki. Forðast viðskiptaþvinganir. Þeim tókst meira að segja að halda sig utan við Síðari Heimsstyrjöldina, þrátt að allir væru að berjast í kringum þá. Og því þurftu þeir ekki að byggja upp ónýtar borgir eftir sprengjuregn. Og þeir notuðu tímann vel til að styrkja innviði landsins. Versti óvinur efnahagskerfis er stríð...Svisslendingar eru þó með her, en aðeins til varnar. Það er herskylda þarna sem allir þurfa hlíta. En góða við herskylduna, er að þar blandast saman ríkir og fátækir, og oft myndast sterk tengsl, sem síðan hafa leitt til viðskiptasambanda eftir að herskyldu líkur.

  6. Létt regluverk til að stofna viðskipti...Sviss býður upp á lága skatta. Auðvelt er stofna fyrirtæki, og auðvelt er að sjá lög um þau á netinu og bera saman við mismunandi kantónur. Margar kantónur bjóða upp á, afar lága skatta á fyrirtæki, þannig að mörg risastór erlend fyrirtæki skrá höfuðstöðvar sínar í Sviss. Og þar með fær Sviss auknar skatttekjur sem það myndi annars ekki fá.

 

Það er ekki náttúrauðlindir, eða lukka sem ræður því að þjóð gengur vel.

Heldur stjórnmálalegt umhverfi.

Snúum nú þessu við og hvernig við gætum notfært okkur Svissneska modelið.

 

  1. Fyrsta skrefið væri Decentralizion og skipta landinu í sjálfsstæðar (kantónur) gætum kallað þær Sýslur. Þær gætu verið: a) Vesturlandsýsla, Vestfjarðasýsla, Norðurlandssýsla, Austurlandssýsla, Suðurlandssýsla og svo Reykjanesskagasýsla. Til að þetta gangi upp, þá þarf að vera beint lýðræði hérna á Íslandi. Vestfjarðasýslan gæti viljað laða að erlenda fjárfesta og lækkað skatta. Austfjarðasýslan gæti dottið í hug að vera með Free Zone area, til efla viðskipti á svæðinu. Dæmi um slíkt er t.d. Í sameinuðu furstadæminum “Fujairah” og Kínverjar sjálfir, byrjuðu á slíku free zone þegar þeir tóku markaðskerfið. Fullt af slíkum free zone til. T.d. Kanaríeyjar. Hver og ein sýsla keppir við hverja aðra um mannauð, og fjármagn. Vestfirðir gætu t.d. Orðið eins og Zug kantóna í Sviss, hálfgerð tax heaven og fjölda stórfyrirtækja setti upp höfuðstöðvar þar.

  2. Engann forseta, sama hugmyndafræði og í Sviss, 7 manna ráð stýrir landinu og skiptist á að vera í forsvari, en allir jafn valdamiklir.

  3. Beint lýðræði, er lykillinn að velgegni Svisslendinga, því væru þær tíðar hér. Þjóðaratkvæðagreiðslur, færu fram í appi síma þín og því auðveldar og ódýrar í framkvæmd. Framtíðinn, gæti orðið þannig, að þjóðinn gæti líka tekið þátt í atkvæðagreiðslum á Alþingi og þannig tekið ákvarðanir með þingfulltrúum. Þannig gæti ákveðinn fjöldi slíkra atkvæða verið með ákveðið mótvægi á móti atkvæðum þingmanna. Beinna gæti lýðræðið ekki orðið.

  4. Frjáls markaður...segjum okkur úr EES og Schengen. Tökum upp grimma stefnu í fríveslun við hverja einustu þjóð í heiminum. Náum stjórn á landamærunum og stýrum, hvaða innflytjendur við viljum fá inn á okkar vinnumarkað.

  5. Hlutleysi, tryggir okkur að við séum ekki í viðskiptastríðum stórveldana, eins og við erum t.d. við Rússa. Enginn virðist vera að fylgja eftir, nema ríkisstjórn Íslands. Viðskiptastríð, eru alltaf ósigur verslunar og efnahag Íslendinga.

  6. Létt regluverk, til vera með frumkvöðlastarf og stofna fyrirtæki auðveldara. Gætum litið til Sílíkon dalinn í Kalíforníu eða Ísraelsku leiðina, en þeir eru líka með sambærilegann Sílíkon valley. En þeir tóku upp frumkvöðlaverkefni, þar sem ríkið fjárfesti og skattahagræddi á móti hverju frumkvöðlafyrirtæki. Ég set tengil á það annars staðar. Myntvandamálið myndum við leysa með því að nota Bandaríkjadollar, enda notar helmingur inn af heiminum hann. Síðan gætum við notað rafmiðla í framtíðinni.

  7. Fjórða iðnbyltingin, það er ljóst að hún mun hafa gríðarleg áhrif á þjóðfélagið. Það er spáð að 800 milljónir starfa munu hverfa í heiminum um 2020. Sennilega mun hærri tala og hlutfall, talið er að um helmingur starfa í Bandaríkjunum gæti horfið.

    Ísland mun ekki þurfa erlent vinnuafl. Heldur að finna eitthvað að gera fyrir núverandi mannfjölda. Fyrsta skrefið væri að minnka vinnuvikuna. Jack Ma sem stofnaði Alibaba, stakk upp á 16 klst vinnuviku. Róbótarnir munu halda uppi lifsgæðunum og halda uppi framleiðslunni og margfalda hana. Setja þyrfti upp öryggiskerfi, þar sem fólk sem fengi ekki vinnu, hefði aðgang að borgaralaunum. Störfin munu breytast, jafnvel stjórnsýslann gæti orðið róbótavædd og minni þörf á stjórnmálamönnum. Sú þjóð sem virkjaði fjórðu iðnbyltinguna sem best, gengi best. En fólk mun alltaf þurfa að vinna eitthvað, en þau störf myndu gjörbreytast og krefjast færri stunda.

  8. Persónukjör.

    En hvað er persónukjör? Kíkjum hérna á skilgreiningu “Áttavitans”:

Persónukjör er það kallað þegar fólk kýs einstaklinga í kosningum í stað þess að merkja einfaldlega við framboðslista stjórnmálasamtaka eins og tíðkast í alþingiskosningum og flestum sveitarstjórnarkosningum.

Forseti Íslands er t.d. kosinn persónukjöri/einstaklingskjöri, sveitarstjórnarfulltrúar í mörgum smærri sveitarfélögum landsins eru það líka og sömuleiðis var kosið til Stjórnlagaþings eftir persónukjöri. Flest félagasamtök, verkalýðsfélög og óformlegri hópar notast líka við persónukjör, þar sem formaður félagsins er t.d. kosinn sérstaklega, síðan varaformaður og svo framvegis.

Forseti Bandaríkjanna er síðan kosinn á einstaklingsgrundvelli, þó kjósendur séu í raun tæknilega að kjósa stuðningsmenn einstaklingsins frekar en einstaklinginn sjálfan.

Útstrikanir og endurröðun frambjóðenda í kosningum eru líka nokkurs konar persónukjör, þar sem fólk getur haft áhrif á það hvaða einstaklingar ná kjöri í flokknum sem það kýs.”

Með persónukjöri, þá fær kjósandinn akkúrat, þann frambjóðanda sem hann vill fá á þing.

Frambjóðandanum er síðan umbunað eða refsað beint og milliliðalaust, ef hann stendur ekki við kosningaloforð sín. Hve oft höfum við ekki séð frambjóðendur, fela sig á bakvið framboðslista flokka, og komast inn á alþingi, í gegnum flokkinn, en ekki á eigin forsendum? Og hanga á þingi áratugum saman.

Flestir flokkar hafa nefnilega lélega síu, á hverjir komast á lista flokksins. Allt þetta býður síðan upp á flokksræði, þar sem frambjóðandinn einbeitir sér að þóknast flokknum, en gleymir umbjóðendum sínum.

 

Hérna er líka góður tengill á skilgreiningu á persónukjöri:
https://www.landskjor.is/media/frettir/Personukjor9feb2009a.pdf

Til að tryggja að hérna dveljist ekki vanhæfir þingmenn á alþingi, áratuga skeið, mætti nota Bandaríska kerfið, en það er að þingmaður megi aðeins vera á þingi, í 2 kjörtímabil, eða hámark 8 ár. Þannig náum við skipta út reglulega út þingmenn, sem verða samdauna kerfinu og hafa litin vilja til að breytinga eða að standa sig.

Framkvæmd á almennum kosningum, gæti fram með svokölluð BLOCKCHAIN kerfi.

En þá er notað svokalla E-voting og ómöguleiki er að svindla. Kerfið byggist á Blockchain, alveg eins og rafmyntir nota.

Hér er tengill sem lýsir þessu betur hvernig framkvæmdin, yrði.

 

https://pixelplex.io/blog/blockchain-voting/

 

Hvað lög þurfum við til að koma á persónukjör eða beinu lýðræði?

Kíkjum á tillögur Stjórnlagaráðs á slíkum lögum.

http://stjornlagarad.is/other_files//stjornlagarad/Frumvarp-til-stjornarskipunarlaga.pdf

  1. gr.

    Alþingiskosningar.Á Alþingi eiga sæti 63 þjóðkjörnir þingmenn, kosnir leynilegri kosningu til fjögurra ára. Atkvæði kjósenda alls staðar á landinu vega jafnt. Heimilt er að skipta landinu upp í kjördæmi. Þau skulu flest vera átta. Samtök frambjóðenda bjóða fram lista, kjördæmislista eða landslista eða hvort tveggja. Frambjóðendur mega bjóða sig fram samtímis á landslista og einum kjördæmislista sömu samtaka. Kjósandi velur með persónukjöri frambjóðendur af listum í sínu kjördæmi eða af landslistum, eða hvort tveggja. Honum er og heimilt að merkja í stað þess við einn kjör dæmis lista eða einn landslista, og hefur hann þá valið alla frambjóðendur listans jafnt. Heimilt er að mæla fyrir um í lögum að valið sé einskorðað við kjördæmislista eða landslista sömu samtaka. Þingsætum skal úthluta til samtaka frambjóðenda þannig að hver þeirra fái þingmannatölu í sem fyllstu samræmi við heildaratkvæðatölu.Í lögum skal mælt fyrir um hvernig þingsætum skuli úthlutað til frambjóðenda út frá atkvæða styrk þeirra. Í lögum má mæla fyrir um að tiltekinn fjöldi þingsæta sé bundinn einstökum kjördæmum, þó ekki fleiri en 30 alls. Tala kjósenda á kjörskrá að baki hverju bundnu sæti skal ekki vera lægri en meðaltalið miðað við öll 63 þingsætin.Í kosningalögum skal mælt fyrir um hvernig stuðla skuli að sem jöfnustu hlutfalli kvenna og karla á Alþingi.Breytingar á kjördæmamörkum, tilhögun á úthlutun þingsæta og reglum um framboð, sem fyrir er mælt í lögum, verða aðeins gerðar með samþykki 2/3 hluta atkvæða á Alþingi. Slíkar breytingar má ekki gera ef minna en sex mánuðir eru til kosninga, og gildistaka þeirra skal frest ast ef boðað er til kosninga innan sex mánaða frá staðfestingu þeirra.

Athyglisvert er í tillögum Stjórnlagaráðs er ennþá málskotsréttur forseta:
60. gr.

Staðfesting laga.Þegar Alþingi hefur samþykkt frumvarp til laga undirritar forseti Alþingis það og leggur inn an tveggja vikna fyrir forseta Íslands til staðfestingar, og veitir undirskrift hans því laga­gildi. Forseti Íslands getur ákveðið innan viku frá móttöku frumvarps að synja því staðfestingar. Skal sú ákvörðun vera rökstudd og tilkynnt forseta Alþingis. Frumvarpið fær þá engu að síður laga gildi, en innan þriggja mánaða skal bera lögin undir þjóðaratkvæði til samþykktar eða synjunar. Einfaldur meirihluti ræður hvort lögin halda gildi sínu. Atkvæðagreiðsla fer þó ekki fram felli Alþingi lögin úr gildi innan fimm daga frá synjun forseta. Um framkvæmd þjóð ar atkvæða greiðslu skal að öðru leyti mælt fyrir í lögum.

 

Ég vil afnema forsetaembættið algjörlega og taka Svissnesku leiðina í því máli, sjá hér að ofan. En þar skiptast 7 mannaríkistjórn (ráðherrar) að fara með embætti "forsetaígildi". Svissarar eru reyndar með formann í eitt ár í senn. En við gætum stytt og skipt um á 6 mánuða fresti.

 

Síðan kemur feitasti bitinn og sá allra mikilvægasti:

  1. gr.

    Málskot til þjóðarinnar. Tíu af hundraði kjósenda geta krafist þjóðaratkvæðis um lög sem Alþingi hefur samþykkt. Kröf una ber að leggja fram innan þriggja mánaða frá samþykkt laganna. Lögin falla úr gildi ef kjós endur hafna þeim, en annars halda þau gildi sínu. Alþingi getur þó ákveðið að fella lögin úr gildi áður en til þjóðaratkvæðis kemur. Þjóðaratkvæðagreiðslan skal fara fram innan árs frá því að krafa kjósenda var lögð

 

Þetta er afar athyglisvert og ef þessar tvær tillögur næðu fram að ganga. Þá gætum við hugsanlega útrýmt pólítíska spillingu og baktjaldamakk í stjórnmálum. Værum með eitt besta lýðræði í heimi ásamt Lichtenstein og Sviss.

Þá gætum við séð mestu efnahagslega hagsæld, og þjóðarsátt sem við höfum aldrei verið vitni að...RÉTTLÁTASTA ÞJÓÐFÉLAG Í HEIMI...

Tökum þessi ofangreind atriði í umræðuna og ræðið við stjórnamálaflokka ykkar og spyrjið þá hvað þeir vilja gera í þessum málum?

 

 


Jim Ratcliffe á 1,4% af Íslandi

Svona til að átta sig á stærðinni, þá erum við að tala um nkl. sömu stærð á við allar Færeyjar, en Færeyjar eru 1,393 km2 en 1,4% er 1443 km2....Reykjanesskagi er 829 km2

 Ég var að blaða í gömlum blaðagreinum og rakst á grein um Jim Ratcliffe, sem á 1,4% af Íslandi og það er tilefni þessa bloggs.

Það voru miklar umræður um kaup útlendinga á landi á Íslandi fyrir nokkrum árum síðann, og talað var líka um kaup Kínverja á Grímstöðum á sínum tíma og Kínverjar gætu hreinlega keypt upp Ísland og þar með færi sjálfstæði Íslands.

Dálítið langsótt, en þó? Jim Ratcliffe á 1,4% af Íslandi og hann er einstaklingur!

Umræður um þetta fjöruðu síðan út, en rætt um að umbætur á lögum, þannig að einstaklingar sem keyptu jarðir þyrftu að hafa heimilsfesti á Íslandi.

En ekkert hefur verið gert.

 

Það væri gaman að vita hver staðan er með jarðir Jim í dag?

Á hann ennþá 1,4% af Íslandi?

Voru gerðar breytingar á lögum?

Ég kíkti á Jarðarlög nr. 84, 2004 en þau hafa breyst síðan ég las þau í skóla á sínum tíma.

Skv. 10 gr þarf heimildir sveitafélaga og ráðherra fyrir ráðstöfun fasteignar fyrir lengri en 7 ár, þ.e.a.s. ef þau erfast ekki.

Þannig að í dag virðist vera einhverjar opinberar takmarkanir á notkun jarða,

10 gr. b liður, virðist þó vera leið fyrir erlenda lögaðila til að eiga land á Íslandi, ef ég er að skilja lögin rétt? En greinin fjallar aðeins um upplýsingaskyldu.

 

[10. gr. b. Upplýsingar um eignarhald lögaðila undir er-

lendum yfirráðum o.fl.

# Ákvæði þetta gildir um lögaðila sem eiga bein eignar-

réttindi yfir fasteign eða fasteignaréttindum sem falla undir

[gildissvið þessara laga skv. 3. gr.],1) enda uppfylli lögaðili

a.m.k. eitt af eftirtöldum skilyrðum:

1. Lögaðili hefur annaðhvort aðalstöðvar eða aðalstarf-

semi í öðru ríki eða hefur þar heimili samkvæmt samþykkt-

um sínum eða um er að ræða útibú erlends lögaðila.

2. Lögaðili fellur undir gildissvið laga um skráningu

raunverulegra eigenda og er [samanlagt]

1) að 1/3 hluta eða meira í beinni eða óbeinni eigu erlends eða erlendra lögaðila

eða er undir yfirráðum erlends eða erlendra lögaðila.

3. Lögaðili fellur undir gildissvið laga um skráningu

raunverulegra eigenda og er [samanlagt]1) að 1/3 hluta eða

meira í beinni eða óbeinni eigu erlends eða erlendra fjár-

vörslusjóða eða sambærilegra aðila eða er undir yfirráðum

slíks eða slíkra aðila

 

Svo að erlend stórfyrirtæki og auðhringar, gætu í raun keypt jarðir hérna, undir skilmálum 10 gr.

Engar kvaðir virðast vera í jarðarlögum og ekki einu sinni minnst á EES samninginn. Jarðarlög eru illa saminn, sýnist mér og það vantar heilmikið í þau.

T.d. sá ég enga kvöð að viðkomandi erlendi aðili þurfi að hafa íslenskt lögheimili hérna eða lögfesti.

Vel getur verið að þetta komi fram í öðrum lögum? Ég er bara orðin ryðgaður í lögum um fasteignir og þarf heilmikla lesningu og upprifjun.

 

Mér sýnist í fljótu bragði engar breytingar hafa verið gerðar og raun gætu erlendir milljarðamæringar eða jafnvel erlend ríki keypt upp Ísland.

Hvað varð um frumvarp Sigurðs Inga í Framsókn?

 

Heimildir:

https://www.ruv.is/kveikur/thetta-eru-jardirnar-sem-ratcliffe-hefur-keypt/

https://www.ruv.is/kveikur/ratcliffe-storeykur-eignaumsvif-sin-a-islandi/

https://www.althingi.is/lagasafn/pdf/154a/2004081.pdf

https://www.althingi.is/altext/146/s/1156.html

https://kjarninn.is/frettir/2019-07-18-sigurdur-ingi-vill-ganga-eins-langt-og-haegt-er-i-nyrri-loggjof-um-jardakaup/

https://utvarpsaga.is/herda-tharf-reglur-um-jardakaup-erlendra-audmanna-her-a-landi/

https://www.bbl.is/lif-og-starf/almenningur-telur-ad-stjornvold-aettu-ad-setja-skordur-vid-jardakaup-erlendra-adila

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband