Afhverju er enginn hægriflokkur til á Íslandi?

Í langann tíma, tíma taldist Sjálfstæðisflokkurinn vera hægra megin í stjórnmálaritrófinu. Kannski einhvern tíma í fortíðinni, var hægt að flokka Sjálfstæðisflokkinn hægra meginn við miðju, en engann vegin alvöru hægriflokk.

Margir klufu nokkrir sig úr flokknum og stofnuðu Viðreisn, sem er sósíaldemókrata flokkur, jafnvel Sósíalistaflokkur.

Þegar litið er yfir eyðimörkina sem er í Íslenskum stjórnmálum, þá fallast manni hendur.

Hvað gerir sanntrúaður lýðræðislega sinnaður hægrimaður eins og ég?
Voða lítið, ég er landslaus og í hægri tilvistarkreppu.

Ég hef tekið eftir því að ansi margt hægrisinnað fólk eins og ég eru landlaust í stjórnmálunum. Við höfum ekki alvöru hægri flokk á Íslandi!...Við erum sem sagt í landi sósíalistanna, allt saman vinstri og miðjumoð. Meðalgreint fólk er fljótt að átta sig á stöðunni á alþingi. Hver og einn einasti flokkur á Íslandi er í miðju- og vinstramegin í litrófinu.

 

Ósigur og fall sósíaldemókratanna er í gerjun.

Við sjáum Trump taka á ESB klaninu sem er eitt stórt Sósíaldemokrata hreiður.

Ég hef lengi haldið því fram að Sósíaldemókratar sé bara Kommúnismi á kennitöluflakki. Sósíaldemokratastefnan snýst um skattaokur, skuldasöfnun, ríkisbákn og forsjárhyggju.

Ofurskattheimta og ofsa þungt regluverk skemma þjóðfélög og bjóða upp á stöðnun. ESB er eitt stórt Woke og Cancel Culture. Þar sem ráðist er á frelsi einstaklinga og frelsi þjóðríkja til að hafa einhverja sjálfstjórn. Frelsi einstaklinga og þjóðríkja er barið niður með hörku. Þær þjóðir sem hlýða ekki eru einangraðar, sektaðir og hótaðar. Einræðiskjarni innan ESB hefur verið að styrkjast ár frá ári frá 2005, og eftir því meiri völd ókjörnu embættismennirnir hafa, því hraðar hefur efnahagur ESB hnignað.

Formúlan er einföld, því meiri valdasöfnun í Brussel og minni völd þjóðríkja, þá hefur efnahagurinn versnað í því hlutfalli.

Andlegt og líkamlegt ofbeldi er hluti af Sósíalismanum.

Ótrúlega þungt regluverk og stjórn í Brussel, mynduð af fólki sem er ekki einu sinni lýðræðislega kosið. Veldur því að sambandið er eitt stórt stöðnunarsamband.

 

Afleiðingar af efnahagsþvingum á Rússa eru að koma fram, Þýskaland í af-iðnvæðingu og flest ESB ríki í stöðnun...Frakkland, Þýskaland og Bretland eru í frjálsu falli efnahagslega og ekkert sem bendir til að því verði snúið við á næstu árum, ekki á meðan það eru Sósíaldemokrataflokkar við völd í þessum löndum...ESB með þunga regluverkið sitt, og án orku, og þurfa að kaupa dýra orku.Er á leið í mikla stöðun upp á 10-20 ára efnahagskreppa framundann.

Asía hinsvegar sem mun fá ódýrt gas í pípum og olíu, korn og málma frá Rússum og verða í mun sterkari samkeppnisstöðu. BRICS er hin nýja þungamiðja heimsins.

Evrópa skaut sig í fótinn með árásir á Rússa.

Og Ísland á að koma sér út úr EES og gera fríverslunarsamninga við öll ríki heimsins og endurheimta fullveldi sitt.

 

BREYTT HEIMSMYND MEÐ TRUMP!

Ræða J.D. Vance varaforseta Bandaríkjanna var tímamótaræða. Þar gagnrýndi hann ólýðræðislegt ESB. Og Trump talar um að setja tolla á ESB, kalla til baka hermenn frá Evrópu og hætta eilífðarstríð og Glóbalismanum.

ESB er núna í áfalli og tilvistarkreppu.

Trump boðar nýtt skeið hægriflokka.

Og Ísland fylgir stefnu Neocons í Brussel, við höfum enga sjálfsstæða stefnu og fylgjum stefnu Brussels án neinnar gagnrýninnar hugsunar. Hér er engin utanríksstefna. Trump boðar hægribylgju fyrir heiminn og það er undiralda í Evrópu, Victor Orbán, Fico í Slóvakíu og fleiri. Því verr sem ESB er stjórnað, því fleiri hægriflokkar spretta fram.

 

Þá kemur að hugmyndum mínum um hinn fullkomna hægriflokk.

Hvernig vil ég hafa hann?

Flokk í anda Voltaire, Adam Smith og Milton Friedman. Útkoman verður Íslenskt Sviss...
Sviss er með allra minnstu miðstýringu á stjórnkerfi í heiminum og eitt það ríkasta land í heimi. Ég hef fjallað áður um í grein um Íslensk/Svissnesku leiðina.

Þar snýst pólítíkin um lýðræði og afnema sem mest miðstýringu ríksins á stjórnkerfinu.

Byrjum á að bæta stjórnkerfið hérna með því að koma á málskotsrétti og beinu lýðræði.

Næsta skref væri svo persónukjör. Til komast undan flokkræði flokkana.

Fulltrúakerfið hérna er hálflýðræði. Engin kjósandi, veit hvaða útkomu hann fær, þegar hann kýs flokk til þings. Og hver og einn einasti stjórmálaflokkur brýtur loforð sín. Og ómögulegt er að refsa einstaka þingmanni fyrir svik, því þeir fela sig á bak við fylgi flokksins. Og prófkjör flokkana eru flókin og afar erfið til að sía út skemmdu eplin.

 

PERSÓNUKJÖR:

Í stjórnlagaþing kosningunum var þetta samþykkt af þjóðinni um persónukjör.

http://www.thjodaratkvaedi.is/2012/spurningar-a-kjorsedli/spurning_nr_4.html

 

Tillögur stjórnlagaráðs

Í tillögum stjórnlagaráðs er í 39. grein gert ráð fyrir því að röð frambjóðenda á lista stjórnmálaflokks hafi ekki áhrif á hvaða frambjóðendur séu kosnir af listanum heldur veljist frambjóðendur til þingsetu í samræmi við þann fjölda persónulegra atkvæða sem þeir hljóta. Þeir kjósendur sem eingöngu velja lista eftirláta þar með öðrum kjósendum að ákvarða röð frambjóðenda á listanum hvort sem margir eða fáir nýta þann möguleika. Gert er ráð fyrir að kjósendur megi velja frambjóðendur af listum ólíkra stjórnmálasamtaka en löggjafanum verði eftirlátið að ákveða hvort sú heimild verði nýtt.

Þetta væri stórsigur fyrir kjósendur að geta valið beint frambjóðendur og þannig vil ég að kjósendur geti kosið hægrisinnað fólk, án þess að flokksræðið þaggi niður í þeim.

Persónukjör er einmitt í anda frelsi einstaklingsins til að stórna sínum örlögum. Einmitt sem allir hægrisinnaðir flokkar í heiminum taka undir.

 

MÁLSKOTSRÉTTUR:

Í stjórnlagaþing kosningunum var þetta samþykkt af þjóðinni um þjóðaratkvæðagreiðslur ...málskotsrétt.

http://www.thjodaratkvaedi.is/2012/spurningar-a-kjorsedli/spurning-nr-6.html

Tillögur stjórnlagaráðs

Í 65. grein tillagna stjórnlagaráðs er gert ráð fyrir að 10% kjósenda geti krafist bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu um lög sem Alþingi hefur samþykkt. Sama hlutfall kjósenda geti haft frumkvæði að því að leggja fram þingmál á Alþingi sem síðan skuli borið undir þjóðina í bindandi eða ráðgefandi atkvæðagreiðslu að vali Alþingis samkvæmt 66. grein. Kveðið er á um það í 67. grein tillagnanna að mál, sem lagt er í þjóðaratkvæðagreiðslu að kröfu eða frumkvæði kjósenda, skuli varða almannahag og tilgreint hvaða málaflokkar séu undanþegnir slíkum ákvæðum.

Umræður og álitamál

Í sumum ríkjum, til dæmis í Sviss og á Ítalíu, eru þjóðaratkvæðagreiðslur algengar en þar geta kjósendur átt frumkvæði að því að kalla fram þjóðaratkvæðagreiðslur samkvæmt ákvæðum í stjórnarskrá.

Málskotréttur/beint lýðræði er andstæða forsjárhyggju sósíalistana. Þar fær einstaklingurinn að segja til um stjórn landsins. Ekki örfáir í miðstjórn sósíalista sem taka allar ákvarðanir fyrir fjöldann og þykjast vita betur en einstaklingurinn.

Til að hægristefnan geti gengið upp þá þarf að hafa gott lýðræði. Málskotrétt og persónukjör, sem veitir spilltu fulltrúakerfinu aðhald. Fulltúakerfið er gegnsýrt af eiginhagsmunum fulltrúa eða sérhagmunum flokka. Fullt af forsjárhyggju og tilskipunum.

 

Hægri flokkurinn myndi berjast fyrir þessu tvennu. Persónukjör og málskotsrétt.

Hann myndi líka berjast fyrir tjáningarfrelsinu sem á undir högg að sækja á Íslandi.

Ný marxisminn hefur náð yfirhöndinni með sínum réttrúnaði. Á alþingi og fjölmiðlum.

Fólk er að átta sig á, að það er ritskoðað.

Haturslögregla og hótanir að kæra til persónunefnar eru refsitól vinstrimanna og með sinn rétttrúnað. Og það eru allt of margar takmarkanir á hvað fólk má segja.

Að mínum dómi, eru allar takmarkanir á tjáningarfrelsi ....MANNRÉTTINDABROT. Með undantekningunni að ekki megi LJÚGA um fólk.

Hinn fullkomni hægriflokkur myndi hafa verslunarfrelsi í anda Adam Smith og svo afnámi miðstýringu ríkisins í anda Milton Friedman. Í raun væri útkoman hið lýðræðislega ómiðstýrða Sviss. Þar væri endapunkturinn.

Síðan kemur að siðferðinu....og þetta er langmikilvægast af öllu.

Og þar gaf Adam Smith góðar leiðbeiningar.

HÆGRIFLOKKUR LÍÐUR EKKI SPILLINGU.

Hann líður ekki sérhagsmuni og að einu fyrirtæki eða einstaklingi sé hyglað á kostnað annarra. Sérhagsmunir og spilling er eitur fyrir alvöru hægriflokk. ÞAÐ ER EKKI HÆGRISTEFNA.

Margir hafa fengið ranghugmyndir um hægristefnuna og kapítalisman, einmitt út af skemmdu eplunum sem eru skemma fyrir hægristefnunni.

Þess vegna verðum við að byrja á byrjunni. Málskotsrétt og persónukjör. Veita aðhald...

Þeir þingmenn sem segja sig vera hægrimenn og eru í sér hagsmunapólítík...eru úlfar undir sauðsgæru....lygarar, loddarar.

Við sjáum Sjálfstæðisflokkinn. Hann hefur fengið á sig stimpil fyrir að stunda sérhagsmunafyrirgreiðslu og það er bara sannleikur. En það hefur hver og einasti flokkur gert á alþingi. Bullandi sérhagsmunapólítík ríkir á Íslandi.

Hinn fullkomni hægriflokkur, myndi ráðast gegn slíku. Innan flokksins væri svokallað GÆÐAEFTIRLIT. Þar sem allir spilltir fulltrúar yrðu reknir úr flokknum og jafnvel kærðir. Sannaðist eitthvað ólögmætt á þá. Ekkert umburðarlindi gagnvart óheiðarleika og spillingu. Frelsi markaðarins verður að losna við spillingu.

Hægriflokkurinn myndi vilja hafa ráðuneyti í and DOGE hans Elon Musk til að minnka ríkisbáknið, ég kalla slíkt SKILVIRKNISRÁÐUNEYTI.

Hinn fullkomni hægriflokkur væri líka upptekinn við að losna við Sovétríki Evrópu (ESB) og koma á fullkomnu verslunarfrelsi með Svissara að leiðarljósi. Stefna á fríverslunarsamninga við HVERT EINASTA RÍKI Á JÖRÐINNI. Ekki bara við eina fámenna og takmarkaða valdablokk eins og ESB. Sem er núna deyjandi.

Með því verður heimurinn einn heimamarkaður fyrir Ísland.

Menn eru að segja að með því að vera á móti ESB, séu menn EINANGRUNNARSINNAR.

Þvert á móti eru þeir sem aðhyllast ESB, eru einangrunnarsinnar. Þeir kjósa að loka sig af með blokk 28 ríkja, í staðinn fyrir að versla við heiminn. Fáránleiki raka ESB sinna er algjör.

ESB er lokað hafta- og tollabandalag. Innan við 50% af Evrópu og innan við 7% af heimsbyggðinni eru innan svæðisins.

Globalismi hefur alltaf verið markmið sósíalistana og hatur á sjálfstæðum ríkjum. Þess vegna stefna allir sósíalistaflokkarnir á ESB, sem eru í raun Sovétríki Evrópu.
Miðstýrt tilskipabákn og lítið lýðræði. Kommissarnir eru t.d. ekki kosnir og eru ígildi miðstjórn USSR.

 

Varðandi samkeppni og einkavæðingu, þá liti flokkurinn til Milton Friedman. Að allsstaðar þar við væri hægt að komast, þá bæri að koma á einkavæðingu. En.... meira að segja Milton Friedman áttaði sig á að ekki er hægt að einkavæða allt og sumt þyrfti einfaldlega að vera undir stjórn ríkissins.

Fákeppni eða einkarekinn einokun er verri en ríkisrekstur. Því þar getur einkaaðilinn rukkað neytandann niður í botn í skjóli einokunar sinnar.

Annað dæmi eru orkumálin á Íslandi. Hérna er dæmið um Landsvirkjun sem er með 90% af orkunni og er frábærlega vel rekið módel og hefur veitt neytendum eitt lægsta raforkuverð í heimi. Hérna er vel heppnað ríkisfyrirtæki.

En það eru þó um 10% af orkunni í eigu einkaðila. Og það bara hið besta mál. En Landsvirkjun má aldrei selja. Raforkumarkaður er fákeppnis markaður og erfitt er að koma á samkeppni á.

Það er sem sagt takmörk á einkavæðingu, skv. Milton Friedman og mér sjálfum.

Það sem ég myndi helst vilja hafa í ríkiseigu er löggæsla, heilbrigðiskerfið (en einkavæða samhiða, sbr. Singapore módelið), sama með skólakerfið, ríkisrekið, en leyfa einkaskólum, alveg eins og er gert í dag. Þjóðgarðar og þjóðlendur eiga að vera eign þjóðarinnar. Náttúruauðlindir, Vegakerfið, flugvellir, hafnir, þar sem samkeppni þrífst illa vegna fákeppni og einnig vegna þess að sumt er þess eðlis að þeir eiga að vera í eigu þjóðarinnar og stjórnast af henni.

 

Við Íslendingar höfum aldrei kynnst því að eiga hægriflokk, en kannski einn daginn og þá sjáum við þvíllíkt blómaskeið lýðræðis og hagssældar sem við aldrei séð. Við þurfum Argentíska Javier Milei eða Donald Trump.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Fyndið - við vorum að skrifa um svo til það sama, samtímis - þó með ólikum hætti væri.

Guðjón E. Hreinberg, 2.5.2022 kl. 20:58

2 identicon

Til hamingju, þér tókst að grauta saman óskyldum hlutum í óskiljanlega þvælu.  Sumu er ég sammála en annað er botnlaus þvæla. Rússland er efnahagslegt smáríki með minna hagkerfi en Ítalía.  Kína og Indland hafa sínar tekjur frá vesturlöndum.  Ekkert þessara ríkja hefur hag af hnignun vesturvelda og vesturveldin hafa engan hag af hnignun þessara ríkja.  En þegar siðlausir bandítar ráðast á önnur sjálfstæð ríki þá ber að spyrna við fótum.

Ef þú vilt mynd með þessu kommenti getur þú hoppað upp í rassgatið á þér.

Bjarni (IP-tala skráð) 3.5.2022 kl. 15:59

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband