Hnignun Bandaríska heimsveldisins

Heimsveldi koma og fara í sögunni. En það eru 5 atriði sem eru sammerkt með falli þeirra.

  1. Efnahagsleg hnignun

  2. Ofþensla í herútgjöldum

  3. Stjórnmálalegur órói og spilling

  4. Innanlands átök og uppreisnir

  5. Ytri þrýstingur (innrásir)

Förum aðeins yfir þessa fimm þætti og berum saman við Bandaríkin.

Efnahagsleg hnignun

Bandaríkin eru í hnignun með ofur skuldir, yfir 35 trilljarða skuldir, bara afborganir af vöxtum er yfir 1,2 triljarður á ári. Gríðarleg peningaprentun til að borga fyrir falskan efnahag, er einkenni Sósíalisma Demokrata. Skuldasöfnun og skattaokur.

Of mikil peningaprentun, veldur verðbólgu og rýrnun dollarins

 

Herútgjöld... Bandaríkjamenn eru með hagsmuni um allan heim og ævintýralega fjölda af herstöðvum til að gæta þessarra hagsmuna. Útgjöld hersins eru yfir 800 milljarða dollara. Peningar sem eru ekki til og verið er að prenta og valda verðbólgu.

 

Stjórnmálalegur órói og spilling.

Innanlands átök og uppreisnir.

Ég tek þessi tvö atriði undir einn hatt.

Það er klárlega tvær þjóðir í Bandaríkjunum sem eru að berjast um völdin.

Annarsvegar eru það Sósíalistahlutinn, sem vill umhverfa þjóðfélaginu í Woke og Cancel Culture og síðan eru það hægra fólkið með Republicana sem vilja halda í hefðbundin gildi sem gerðu einmitt Bandaríkin að stórveldi. Við sjáum mismunandi stefnur birtast í fylkjum Bandaríkjanna.

Það má meira að segja sjá þetta á Íslandi líka, tvær þjóðir.

Varðandi spillinguna, þá er hún klárlega gríðarleg. Demokratar nota FBI, CIA og dómskerfið til að ofsækja Trump og síðan eru það samfélagsmiðlarnir skikkjaðir til að vera með ritskoðun á netinu. Allt er þetta stefna í átt að fasisma.

Við sáum BLM hreyfinguna brenna borgir Bandaríkjanna með stuðning Demokrata og hvatningu.

Það er gríðarlega erfitt að bjarga þjóðfélagi sem er svona gríðarlega klofið. Íslendinga eiga nkl. Sama vandamál að stríða.

Ástandið er hinsvegar ekki orðið óbærilegt, en stefnir í það. Óróinn brýst vanalega út þegar efnahagurinn fer niður á við og hann er svo sannarlega á niðurleið í Bandaríkjunum.

Ytri þrýstingur.

Hann er klárlega til staðar og uppreisn gegn Bandaríkjunum, leiða Rússar.

Efnahagsþvinganir á Rússa og reknir úr SWIFT veldur því að Rússar hafa fylkt liði og notað BRICS til að þjappa þjóðum saman gegn Bandaríkjunum.

Og það hefur ekki verið erfitt...enda hefur Bandaríkin herfilega misnotað efnahagsþvinganir gegn flestum þjóðum heimsins. Síðan eru það endalausar innrrásir og afskiptum af stjórnmálum annarra ríkja, svokölluð Coupe, sem CIA er með puttana í. Þá eru andstæðingar stjórnvalda sem Washington líkar ekki við, vopnaðir eða fjármagnaðir og stjónvöldum velt úr sessi.

Núna fara Rússar í farabroti ásamt Kínverjum og stefna að af-dollarvæðingu.

Hætta nota dollarann. Þetta mun leiða til gríðarlegrar hnignunar og að lokum falls Bandaríska heimsveldisins...

 

Putin talar um Multipolar world. Og ég held að það verði niðurstaðann.

Kínverjar taka fram úr Bandaríkjunum sem efnahagsveldi og Rússar eru nú þegar orðnir sterkasta herveldi heimsins, með afar háþróuð vopn og stærsta kjarnorkuvopnabúr heimsins.

Bandaríkin falla ekki algjörlega, en mun þurfa að deila “völdum” með Kínverjum og Rússum. Multipolar world.

Og ég sé líka fyrir tvær efnahagsblokkir, hinsvegar Vestrið, Bandaríkin og Evrópu og síðan eru það BRICS þjóðirnar sem eru miklu fjölmennari og á mikilli uppleið.

Það er þegar komið á viðskiptastríð á milli Kínverja og Vestursins í formi ofurtolla.

Þessar tvær blokkir gætu mögulega fara í sitt hvora leiðina og hreinlega hætt efnahags samskiptum og verslun og verslað bara innbyrðis. Eða þá verslað gagnvart þjóðum sem eru ekki í hvorugri blokkinni, eins og t.d. Afríka.

Þetta gæti gerst, annað eins hefur nú gerst þegar Kalda stríðið var uppi og heimurinn skiptist í blokkir. Og ég spái slíkum heimi aftur.

 

Heimildir:

https://www.youtube.com/watch?v=uktsILxaNmw&t=726s

 

 

 

 


« Síðasta færsla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband