EFTA er gæfuspor
29.11.2024 | 16:27
Fríverslunarsamtök Evrópu, EFTA (European Free Trade Association) er samstarfsvettvangur aðildarríkja EFTA sem nú eru fjögur: Ísland, Noregur, Liechtenstein og Sviss. Allt eru þetta ríkustu þjóðir heimsins séð litið til GDP per capita. Svo margar þjóðir hafa nennt að gera fríverslunarsamning við EFTA.
T.d gerði Bretland samning við EFTA, Íslandi til hags.
Ísland gerðist aðili að EFTA árið 1970. Aðildarríki EFTA hafa gert fríverslunarsamning sín í milli, EFTA-sáttmálann, og gera jafnframt sameiginlega fríverslunarsamninga við lönd utan Evrópusambandsins (ESB) með það að markmiði að tryggja sem best viðskiptakjör á erlendum mörkuðum.
EFTA-ríkin hafa gert 29 fríverslunarsamninga við fjörutíu ríki og ríkjasambönd utan ESB. Samningstextar EFTA eru í stöðugri þróun og endurspegla áherslur EFTA-ríkjanna, svo sem um umhverfisvernd, vinnurétt og kynjajafnrétti. EFTA hefur nýlega gert sérstakan kafla um rafræn viðskipti (E-commerce) sem ætlunin er að notast við í framtíðarsamningum EFTA um fríverslun. Tekur þetta mið af þeirri öru þróun sem átt hefur sér stað á þessu sviði undanfarin ár og endurspeglar jafnframt viðræður á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO).
Á sama tíma er EES samningurinn orðinn dragbítur fyrir Ísland.
Endalaust reglugerðarfargan sem oft byggist á rétttrúnaði frekar en skynsemi er dempt yfir okkur og við neyðumst til að innleiða, alveg sama hve tilskipunarnar frá Brussel embættismönnum eru vitlausar.
Frá því að við gengum inn í EES samninginn, þá hefur ESB heldur betur breyst og er orðin yfirþjóðlegt ríki á borð við Bandaríkin.
Þau ríki sem ekki fylgja og hlýða embættismönnunum sem engin hefur kosið í Brussel, fá á sig allskonar refsingar. Ungverjar, Slóvakar og Pólverjar t.d. Hafa fengið að kenna á því og fleiri þjóðir.
ESB er á hausnum....orkulaus álfa með 0% hagvöxt eða mínus.
Og ESB er að hrynja....Bretar forðuðu sér, út af opnum landamærum og núna vill AFD Alternative für Deutschland, segja sig úr ESB, enda er Þýskaland sligað af orkuleysi eftir að hafa misst af ódýrri rússneskri orku.
Þetta eru stór tíðindi, enda Þýskaland burðarás ESB og hagkerfi ESB slær í takt við Berlín og Berlín er á hausnum.
Brussel kerfið er byggt á Sósíaldemokratisma kerfi.
Það þýðir mikið reglugerðarfargan, rétttrúnaðarstefnu eins og ímynduð loftlagsvá og loftlagsskattar og reglugerðarfargan rignir yfir aðilarríkin og ESB er að verða sífellt ósamkeppnisfærri við ríki Asíu og afgangin af heiminum.
Skuldasöfnun, skattaáþján, rétttrúnaðarstefna og forsjárhyggja er innbyggt í Sósíaldemokratastefnu Brussel.
Með þessu áframhaldi þá hrynur sambandið.
Eina leið ESB er að breyta sér í fríverslunarsamband eins og t.d. EFTA.
Helstu grunnstoðir EFTA eru:
Free Movement of Goods
Free Movement of Services
Free Movement of Capital
Free Movement of Persons
Horizontal Policies
Competition / State Aid
Hérna er svo listi yfir ríki sem EFTA hefur gert fríverslunarsamninga:
http://www.efta.int/trade-relations/free-trade-network
Og núna er EFTA í samningum við MERCOSUR ríkin sem eru:
(Argentina, Brazil, Paraguay and Uruguay)
Eins og ég segi, þá er gæfa Íslands að vera í EFTA og með þessar sterku þjóðir í bandalagi við okkur og að gera fríverslunarsamninga við sem flesti ríki heimsins.
Ísland hefur síðan gert fríverslunarsamning við 2 stærstu ríki heimsins sem eru Kína og Indland. Og er það mikið gæfuspor.
En...hvað með BRICS og Rússland? Rússland leiðir BRICS klárlega ásamt Kína.
Ísland þarf að fara að endurskoða samskipti sín við Rússland og taka upp stjórnmálasamband aftur, en Þórdís rak rússneska sendiherran úr landi og lokaði sendiráðinu í Moskvu. Og það eru bara ekki íslenskir hagsmunir að búa til óvini og ein mestu mistök í sögu utanríkisstefnu Íslands.
Áfram með smjörið og fríverslunarsamninga.....
Heimildir:
https://www.stjornarradid.is/verkefni/utanrikismal/utanrikisvidskipti/vidskiptasamningar/efta/
https://www.stjornarradid.is/verkefni/utanrikismal/brexit/friverslunarsamningur/
https://en.wikipedia.org/wiki/Maastricht_Treaty
AFD-ADVOCATING-FOR-GERMANYS-EXIT-FROM-EU
Fríverslunarsamningur við Indland
Fríverslunarsamningur við Kína