Vandræða barnið ESB og embættismennirnir

 ESB er hnignandi ríkjasamband sem er í eðli sínu á sama stalli og Sovétríkin.

Evrópa er orkulaus eftir viðskiptastríð við Rússa, sem Evrópa tapaði.

Þýskaland sem er aðal driffjöður ESB er í kreppu og af-iðnvæðingu. Öfgastefnur í umhverfismálum og án ódýrar rússneskrar orku gerir ESB ósamkeppnishæft. Álfa án orku getur ekki haft heilbrigt og sterkt efnahagslíf.

10-20 ára hnignun er framundan. Við munum líka sjá óeirðir og fátækt framundan í Evrópu vegna slæmrar innflytjendastefnu, eða stefnuleysi.

Öll stærstu hagkerfi Evrópu eru í kreppu. Og þetta lið í Brussel vill þessi ríkisstjórn líma okkur við...

Ofan á þetta eru fréttir af öfgastefnu öfgavinstriflokka í Evrópu og árásir á lýðræðið. Rætt var að banna AFD í Þýskalandi og Le Pen í Frakklandi var útilokuð. Stofnandi Telegram var handtekinn og hann beðinn um að skipta sér af kosningum í Rúmeníu. ESB er stjórnað af embættismönnum, sem er alls ekki að hugsa um hagsmuni álfunnar, heldur eru hreinlega í öfga vinstri atktívista stefnu. Þeir vilja hervæða álfuna í stríð við Rússa, sem eru stærsta kjarnorkuveldi í heimi og myndi aldrei berjast við ESB á hefðbundin hátt. Einn kjarnorkukafbátur þeirra gæti eytt Evrópu. Svo að hervæðingin er fyrir djúpríkið... hergagnaframleiðendur.

Rússneskir fjölmiðlar eru bannaðir (hver er óttin við að heyra hina hliðina?), rætt hefur verið að banna Bandaríska samfélagsmiðla, en embættismennirnir þora því ekki út af Trump. Og nú er talað um að slaufa Evrópska blaðamenn og banna þeim að fjalla um Rússland eða heimsækja það. Þetta er allt í ætt við Fasisma, frekar en virðuleg bandalag. Síðann eru embættismennirnir í stríði við Fico í Slóvakíu, og Orbán í Ungverjalandi, af því þeim datt í hug að láta hagsmuna þjóða sinna ganga fyrir embættismennina í Brussel. J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna hélt fræga ræðu, þar sem hann benti að lýðræði færi hnignandi í ESB.

Skipbrot sósíaldemokratastefnu Brussels

Annað vandamál ESB er sósíalistastefnan og kerfið er stjórnað af örfáum embættismönnum sem enginn kaus. Minnir ansi mikið á Sovétríkin.

Það sem einkennir Sósíaldemokrataflokka. Er ofurskattlagning og skuldsetning. Þeir eru nefnilega ennþá kommúnistar og halda að peningar vaxi á trjánum.

Í þessu liggur kerfisvilla Sósíaldemokratismans...

Ofurskattheimta og ofsa þungt regluverk skemma þjóðfélög og bjóða upp á stöðnun.

Þar sem Sósíalistarnir tóku upp markaðskerfið inn líka, þá er þessi hnignunar þróun hægari. En hnignun er engu að síður í gangi.

Og kerfisvillann býður á endanum upp á gjaldþrot.

 

ESB er eitt stórt Woke og Cancel Culture samband. Þar sem ráðist er að frelsi einstaklinga og frelsi þjóðríkja til að hafa einhverja sjálfstjórn. Frelsi einstaklinga og þjóðríkja er barið niður með hörku. Þær þjóðir sem hlýða ekki eru einangraðar, sektaðar og hótaðar sbr. Ungverjaland og jafnvel Pólland.

Andlegt og líkamlegt ofbeldi er hluti af Sósíalismanum.

Ótrúlega þungt regluverk og stjórn er í Brussel, mynduð af embættismönnum, sem er ekki einu sinni lýðræðislega kosnir (dæmi Úrsula Van Der Leyen). Veldur því að sambandið er eitt stórt stöðnunarsamband.

Þeir vilja stjórna öllu í daglegu lífi einstaklingsins og berja niður þjóðríkið.

Það koma upp atburðir sem valda því að hugmyndafræðin og stefnan bíður gjaldþrot. Við sáum það með kommúnisma Sovétríkjana. Fallið..

Ofan á þetta er Evrópa í viðskiptastríði við Bandaríkin, og fær þannig að kenna á eigin meðulum, en ESB hefur sett met viðskiptaþvinganir á Rússa og þær gera ekkert annað en að skaða efnahag ESB enn frekar.

Allir vita og sjá þetta en enginn dettur í hug að breyta aktívistastefnu embættismennina.

 

Hvað getur Evrópa gert?

Jú, stokka upp á sósíalískt ESB, taka út embættismennina sem enginn kaus og hætta miðstýringunni og leyfa þjóðunum að vera með fullveldi sitt í friði.

Evrópa þarf að breytast í fríverslunarsamband, ekki miðstýrt ríkjasamband eins og Sovétríkin.

Brussel þarf að láta af afskiptum af einstökum þjóðríkjum og leyfa þeim að blómstra í friði. Fríverslunarsamningar eiga að blómstra. Og hætta styrkjum og forræðishyggju í efnahagsmálum.

EFTA er dæmi um fríverslunarsamband og ætti að vera fyrirmynd, við Íslendingar höfum góða reynslu af fríverslunarsamningum EFTA.

Frelsi einstaklinga, og þjóðríkja verður að tryggja til að Evrópa blómstri.

Evrópa hefur kannski ekki miklar náttúruauðlindir, en álfan hefur gríðarlegann mannauð. Og til að mannauður virki, þarf FRELSI EINSTAKLINGS að blómstra.

Frelsi er lykilorðið hérna. ESB er hafta bandalag, þess vegna eru að koma brestir í þetta Sovét. Það er talað um fjórfrelsi...Fjórfrelsi er hugtak sem vísar til frelsis til flutninga --- 1) fólks, 2) varnings, 3) þjónustu 4) fjármagns innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), innri markaðar Evrópusambandsins (ESB). Þetta er misheppnuð stefna.

 

Evrópuríkin þurfa frelsi til að ráða sínum málum. Og kannski er hægt að búa til létt regluverk eins og er hjá EFTA til að tryggja fríverslun og frjálst flæði fjármagns á milli landana. Þjóðríkið þarf að blómstra.

 Ég sé engin merki um að ESB breytist. Það þarf hrun til að ESB Sovétið, breytist. Og hrunið liggur í loftinu.... alveg eins og gerðist með Sovétríkin. Það hrun lá í loftinu í langann tíma.

 Íslendingar þurfa segja upp EES samninginum sem er reyndar hræðilegur.

Fáar tollaívilnanir, opin landamæri og endalausar íþyngjandi reglugerðarfargan og akvítvista stefna sem er að drepa allan efnahag.

Við þurfum sem sagt að breyta EES samninginum í TVÍHLIÐA FRÍVERSLUNARSAMNING.

Taka það versta úr EES saminginum og henda og halda því besta fyrir íslenska hagsmuni.

Þetta er mun einfaldara en margur heldur. Og við hættum að fá bull reglugerðir sem eiga enga samleið með íslenskum veruleika. Og helst vil ég fá alvöru fríverslunarsamning á borð við þann sem við erum með við Kína. Engir tollar helst...

Það er merkilegt að enginn íslenskur stjórnmálaflokkur er að tala um hve hroðalega slæmur EES samningurinn er og berjast fyrir tvíhliðasamningi. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband