Haukurinn Lindsey Graham og annað slúður
4.6.2025 | 18:20
Ég veit ekki hve margir þekka Lindsey Graham? En þeir sem fylgjast með erlendum fréttum, þekkja hann vel. Hann er ansi hávær öldungadeildarþingmaður Republicana frá Suður Carolina.
Hann er svokallaður senior United States senator og er afar háttsettur innan Republicanaflokksins... þegar hlustað á er á manninn, þá kemur í ljós að maðurinn er hreinlega með stríð á heilanum. Hann talar út og suður um stríð sem Bandaríkjamenn eigi að heyja. Hann talar fyrir að ganga frá Íran.
Honum er einstaklega illa við Rússa og talaði fyrir að leysa upp Rússneska sambandslýðveldið. Og hann fagnaði gríðarlegum viðskiptaþvingunum á Rússa 2022 og taldi að þar með væri hægt gera landið gjaldþrota og leysa upp Rússland og skipta landinu í nokkur ríki sem stjórnað væri af Vestrinu og hægt væri að komast yfir auðlindir Rússlands.
Hann talar líka hátt um að ganga frá Kína á sama hátt. Fyrst Rússland og síðann Kína.... tveir fyrir einn....einn pakki.
Hann talar fyrir að setja 500% toll á Evrópu, ef þau hætta ekki viðskipti við Rússa. En þrátt fyrir 17 viðskiptaþvinganapakka Brussels, þá eru ennþá gríðarleg viðskipti á milli ESB og Rússlands, og þá með olíu og gas.
Afleiðingar að slíkum tollum yrðu stjarnfræðilegar fyrir Evrópu og reyndar heiminn allann..
Graham, talar þvert gegn stefnu Trumps og sérstaklega með Úkraínustríðið sem Trump vill losna við, en á erfitt með losa sig, út af Djúpríki Bandaríkjanna.
Graham skilst mér hefur gefið í skyn að hann muni fara gegn Trump (impeachment) ef Trump hlýðir ekki. Ofan á þennan hauk, þá þarf Trump að fást við Mark Rubio utanríkisráðherra og Pete Hegseth varnarmálaráðherra, sem báðir eru haukar og vilja átök.
Sagt hefur verið að að þegar Biden var við völd, þá hafi völd Bandaríkjaforseta skerst og eru í dag í skötulíki, miðað við áður. Trump getur þó haft valdið til að reka og ráða ráðherra.
Hérna er skýringin afhverju Trump er ekki búinn að kúpla sig frá Úkraínustríðinu.
Það eru gríðarleg samsærisöfl í Washington sem vill ekki frið.
Helst að fara í átök við Rússa og Kínverja.
Ég lofaði slúðri. Lula forseti Brasilíu upplýsti frá samtali sínu við Biden.
Þegar Biden var varaforseti hjá Barak Obama. Joe Biden og Hunter Biden áttu/eiga viðskiptahagsmuni í Úkraínu. Það er vitað.
En þegar hann hitti Putin og Putin var þá ekki forseti heldur Dimitry Medvedev (forseti Rússlands 2008-2012) þá sagði Biden við Putin, að hann (Bandaríkin) vildu ekki að Putin yrði forseti aftur....
Sem sagt hreinlega bannaði honum að fara fram aftur... það verður að teljast ansi mikil afskiptasemi og inngrip inn í innanlandsmál annars ríkis að hreinlega skipa mönnum, hvað þeir eiga að gera.
En þetta er reyndar ekkert nýtt að Bandaríkin sem heimsveldi sé stjórnsamt.
Nema hvað Putin hafi brugðist við af stillingu, en sagt Biden að þegja og hætta afskiptaseminni. Þar með eignaðist Putin, óvin í Biden, sem hefur alla tíð síðann hatast út í Rússland. Og það skýrir kannski harðlínustefnu Bidens alla tíð.
Ögranir í að koma Úkraínu inn í Nato og að túnfæti Rússlands og í forsetatíð Biden, þá voru engar hömlur á vopnasendingum til Úkraínu. Meira að segja langdrægar eldflaugar. Biden fór yfir mörg rauð strik Rússa og á tímabili, þá lá við að upp úr syði og það yrði kjarnorkustyrkjöld.
Rússar fóru að tala um notkun kjarnorkuvopna og þeir sprengdu síðann ofursprengjuna Oreshnik í Úkraínu sem aðvörun, en þetta er langöflugast vopn sem er ekki kjarnorkuvopn. Trump sagði mörgum sinnum að leikið væri að eldinum og löndin á mörkunum að lenda í kjarnorkustyrkjöld.
En þetta er ekki búið. Haukar eins og Lindsey Graham ásamt Neocons í Brussel.
Gelta um alla fjölmiðla að stöðva verði Rússa og nýtt vígbúnaðarkapphlaup sé eina lausnin .. Trump virðist vera eini sem vill leysa málin á friðsaman hátt.
Hann hefur meiri áhuga á tollastríðum en Úkraínu.
Það er annars merkilegt að það eru engar friðarhópar í Evrópu að tala fyrir friði eða fara í mótmælagöngur út af Úkraínustríðinu. Þvert á móti þá tala flestir Evrópuleiðtogar fyrir vopnvæðingu og það þurfi að fara í stríð við Rússa og sama gera fjölmiðlar. Áróðurinn er fáránlegur í ljósi þess að Rússland er kjarnorkuveldi og bara einn kjarnorkukafbátur þeirra gæti gert út um Evrópu. Svo afhverju þetta vopnaskak? Gæti það verið að sömu leiðtogar hafi sett álfuna í efnahagskreppu og orkuskort með því að loka á rússneska orku? Og í staðinn fyrir að taka ábyrgð á efnahagserfiðleikum í Evrópu, þá á bara að eyða meiru.
800 milljarðar Evra í herútgöld. Og íslenska ríkisstjórnin ætlar að taka þátt með því að verja 1,5% (70 milljarðar ISK) í herútgjöld. Og við erum ekki einu sinni með her.
Það er margt skrítið að gerast í heimsmálunum og öllu snúið á hvolf.
Fáar raddir um að slaka á og tala um frið.
En hvað gerir Trump? Svarar hann blöffi Lindsey Graham (impeachment) og segir sig frá Úkraínuverkefninu? Það er gríðarleg valdabarátta í Washington.
Þar allir eru að þrýsta á Trump að taka upp harðlínustefnu gegn Rússlandi.
Stefna er þegar misheppnuð, því Rússar eru með gríðarlegann hagvöxt og efnahagsuppbyggingu. Á sama tíma glímir Trump við 37 trilljarða skuldir og Evrópa líka. Kannski er það dæmigert að þegar efnahagserfiðleikar steðja að, að reynt er að dreifa athyglina í aðrar áttir... vopnaskak.
Heimildir:
https://www.rt.com/news/618659-trump-adviser-graham-passport/
https://www.youtube.com/watch?v=Jk3-w4Z21Uk
P.s.
Ofan á þetta hefur Steve Bannon blandað sér í Lindsey Graham málið.
US Senator Lindsey Graham should be thrown in jail or have his passport revoked for stirring up the Ukraine conflict, former adviser to President Donald Trump, Steve Bannon, has said.
Steve Bannon has accused Lindsey Graham of stirring up the Ukraine conflict by falsely promising US support to Kiev.
Þannig að það er gríðarlega valdabarátta í Washington.