Hálauna eða láglaunaþjóð?
6.6.2025 | 15:42
Bjarni Benediksson skrifaði í Morgunblaðinu desember 2023, þegar hann var fjármálaráðherra, um lága framleiðni og tekjur í ferðamanniðnaðinum.
"Lág framleiðni og mörg láglaunastörf"
"Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir framleiðni í ferðaþjónustu á Íslandi ekki vera háa.
Í samtali við mbl.is segir Bjarni að verkefnið sé að skapa sem mest verðmæti fyrir innflæði gjaldeyris til landsins."
Núna tók núverandi forsætisráðherra undir fyrrum forsætis- og fjármálaráðherra. Svo stjórnmálamenn virðast gera sér grein fyrir þessu.
Ég hef margt oft skrifað og bent á að Ísland væri að einbeita sér að láglaunstörfum og starfsemi í gegnum árin. Vissulega gefur ferðamannaiðnaðurinn mikla peninga í gjaldeyri, en gerir það þó ekki hlutfallslega. Er allsstaðar láglaunageiri í heiminum. Við erum með einfaldlega rangar áherslur á atvinnustarfsemi. Við erum ekki að einbeita okkur að hálaunastörfum og starfsemi sem þeim fylgir. Við erum vissulega með vel menntað vinnuafl, hámenntaða þjóð.
En hásskólafólkið okkar er illa nýtt. Það er nefnilega flestir að vinna hjá ríkinu og stækka ríkisbáknið. Ríkið skapar ekki gjaldeyri eða verðmæti.
Ríkið lifir á skatttekjum og gjöldum sem eru sett á einkaframtakið.
Og í staðinn fyrir að vel menntaða fólkið okkar sé að róa út og fiska, þá bíður það eftir aðrir komi með aflann á land.
Einkaframtakið heldur uppi þjóðinni, og fólk er að skammast út í kapítalisman?
Hvað eiga ríkustu þjóðir heims sammerkt?
Jú þær nýta sér hámenntaðan mannauð sín og einbeita sér að hátæknistörfum og AI störfum.
Dvergríkið Lichtenstein, með 36.000 mann, sérhæfir sig í bankastarfsemi og svo sérvörur fyrir tannlækna. Og eru fremstir í heiminum á því sviði. Og verkamaðurinn sem vinnur þennan iðnað er að skila gríðarlegum tekjum fyrir þjóðarbúið og fá góð laun.
Önnur dæmi eru svo Luxemburg, Sviss, Singapore sem einbeita sér að fjármálageiranum. Og svo Taiwan. Taiwan er með helminginn af örflögu framleiðslu í heiminum (micro chips). Hátækni framleiðsla skapa gríðarlegar tekjur fyrir þjóðarbúið. Ísrael er líka dæmi, þar sem áhersla er lögð á frumkvöðlasamstarfsemi. Og Ísrael er orðin efnuð þjóð á frumkvöðlastarfi. Þeir eru með sitt Israel Silicon Wadi, sem er sambærilegt við Silicon dalinn í Kaliforníu. Það eru til fjölda hátæknistarfa sem við getum reynt að fá til Íslands (t.d. gegnum fríverslunarsvæði), þannig menntaða fólkið okkur geti skapað alvöru verðmæti. Okkur vantar fríverslunarsvæði á Íslandi og fríverslunarsamninga við önnur lönd. Við gætum í raun nýtt raforku okkar fyrir Fjórðu iðnbyltinguna og róbótavæðinguna. En hún byggist á orku og ekkert nema orku.
Ódýr orka okkar gæti laðað til okkur fyrirtæki sem eru í AI og róbótaframleiðslu eða nota slíka framleiðslu. Tesla er t.d. róbótavæddasta verksmiðja í heimi og lykiillinn er orka.
Að einblína á ferðaþjónustu og stóla á hana við gjaldeyris innkomu er röng stefna. Ferðamenn geta horfið á einum degi eins og 11 september og svo Covid. Núna á að setja umhverfisskatta á Íslendinga frá Brussel og líklega mun ferðamönnum því fækka. Bjarni kvartar yfir lágri framleiðni í ferðaþjónustu. Bíðið bara eftir umhverfisskattinum og skattana sem verið er að leggja á okkur núna.
Ætlar Íslendingar að vera fremstir í heiminum og hjóla í Fjórðu iðnbyltinguna eða vera miðlungsþjóð?
Heimild:
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/08/16/lag_framleidni_og_morg_laglaunastorf/
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/06/06/halaunastorf_i_forgrunni/