100 trilljarða skuldir ofan á 37 trilljarða?
11.6.2025 | 09:39
Bandaríkin eru tæknilega séð gjaldþrota...
37 trilljarða dala skuldir Bandaríkjanna eru aðeins toppurinn á ísjakanum Ófjármagnaðar skuldbindingar gera stöðuna miklu verri, sagði Marc Ostwald, aðalhagfræðingur hjá ADM Investor Services International.
Ófjármagnaðar skuldbindingar yfir 100 trilljarða dala frá "Medicare og Social Security" birtast ekki á hefðbundnum skuldareikningum, en þær eru mjög raunverulegar langtímaskuldbindingar, lagði hann áherslu á og benti á:
Enginn vill tala um það í stjórnmálum Bandaríkjanna, því vandamálið er svo stórt og enginn hefur hugmynd um hvernig eigi að leysa það.
Það eru engir peningar til fyrir þessi verkefni, þar sem greiðslur sem starfsmenn fara í þau eru notaðar til að greiða út bætur til eftirlaunaþega, útskýrir Michael R. Englund, framkvæmdastjóri Action Economics.
Áður fyrr komust þjóðir upp með svona óuppgerðar greiðslur fram í framtíðina, vegna þess að:
Það voru fleiri starfsmenn á hvern eftirlaunaþega.
Fólk lifði ekki eins lengi.
Íbúafjöldinn var yngri í heildina.
Þjóðin eldist þýðir að þetta ójafnvægi skapar vandamál.
Englund benti á að engar stórar umbætur hafi verið gerðar síðan George W. Bush forseti mistókst árið 2001 að gera umbætur. Demókratar vilja hækka skattgreiðslur og Repúblikanar vilja fresta eftirlaunaaldri og hvorugur aðilinn er tilbúinn að víkja, sagði hann.
Trump rær lífróður til að bjarga þjóðinni, hann er að gera gríðarlega góða hluti.
Skera niður ríkisútgjöld með DOGE og auka orkuframleiðslu.
Hvað er til ráða? Bandaríkin fari í greiðsluþrot?
Bandaríkin og Rússland eru einu löndin í heiminum með allt innan sinna landamæra. Þau geta lokað sig af. Báðar þjóðirnar eru reyndar að vinna í því að framleiða allt heima og vera óháðir öðrum löndum
Eina sem ég sé í stöðunni sem geti hjálpað Bandaríkjunum.
Þeir eiga gríðarlegar náttúruauðlindir og næga orku margar aldir fram í tímann. Trump er að gefa í orkuframleiðslu. Það gefur gríðarleg pening.
Róbótavæðingin eldri þjóð, en róbótar vinna vinnuna. Elon Musk talaði um að smíða 8 milljarða róbóta. AI og róbótavæðing býr til gríðarlega framleiðslugetu og peninga. Róbótar vinna 100 falt á við manneskju. Tekur aldrei hlé og hægt er að skipta um slíkann ef hann bilar. Hægt að leysa þetta með róbótavæðingu.
Núna skiptir máli hvernig núverandi stjórn heldur á málunum. Það var gæfa Bandaríkjamanna að losna við Demokrataflokkinn frá völdum, en flokkurinn var á leiðinni með landið í ræsið með Biden stjórninni. En kannski eyðileggja þeir landið í innanlandsátökum, eins og við sjáum núna í Kalíforníu?
Hvað um það.... Trump mun ekki gefast upp og er að gera rétta hluti...
Vonandi að það dugi.
Heimildir:
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2025/06/11/tollarnir_virka_og_hallinn_minnkar/