Stríð á milli Ísrael og Íran byrjað
13.6.2025 | 00:32
Segir í tilkynningu frá Axios Það eru að berast fréttir um Ísraelskar þotur séu inn í Íran núna í árásarferð um miðnætti á íslenskum tíma. Stríð er hafið og allt fari úr böndunum. Íranir hafa hótað hefndum og líka að ráðast á Bandarískar herstöðvar í nágrannalöndum.
Lítið hægt að segja meira á þessarri stundu. Hver verður framvindan?
Eitt allsherjarstríð framundan, stóra spurningin er hvort Íranir ráðast á Bandarískar herstöðvar í Persaflóa, en Íranir hafa hótað því.
Það þýðir Bandaríkin dragist inn í átökin líka. Það er afar ólíklegt að Ísraelar hafi gert árásina án samþykkis Bandaríkjamanna, enda er Ísrael undir hálfgerðri stjórn Bandaríkjanna sem þeir nota til að koma sínum málum áleiðis í Miðausturlöndum.
Fréttir hafa verið að Íranir hafi náð auðga úran í kjarnorkueldsneyti upp í 60% og innan nokkura, vikna gætu þeir aukið í 90% og það þýðir kjarnorkusprengjur í 15 eldflaugar. Það eru líka fréttir að Íranir hafi tekist að leyna kjarnorkuverkefni á ónefndum stað í Íran. Það eru líkar fréttir að Kínverjar hafi verið að senda gríðarlegann fjölda eldflauga til Íran.
Íran með 15 kjarnorkuodda myndu án efa verið að notað á Ísrael, enda hefur klerkastjórnin sagt það hreinskilningslega að hún vilji eyða Ísrael. Íran með kjarnorkusprengju myndu einnig skapa gríðarlegt valdaójafnvægi, sérstaklega séð frá Saudi Arabíu.Það eru fréttir um að 200 Ísraelskar herþotur hafi tekið þátt í árásinni. Og þeir hafi náð að fella flesta hershöfðingja í rúmum sínum. Þeir voru svo óviðbúnir.
Árásir Ísraela voru úti um allt Íran. Ráðist var á eftirfarandi kjarnorkuverkefni Írana:
Natanz
Hamdan
Kharamabad
Kermanshah
Hérna frá erlendum fréttaveitum á ensku lika (afsakið)
Chief of Staff Mohammad Bagheri. - felldur
IRGC Commander Hossein Salami. - felldur
IRGC Aerospace Chief Amir Ali Hajizadeh. - felldur
* uranium enrichment facility in Natanz no longer exists.
*The IDF and the Mossad did to Iran in 10 minutes what we did to Hezbollah in 10 days. This includes targeted assassinations, reportedly targeting the Iranian General Staff and nuclear scientists, attacking Revolutionary Guard headquarters, nuclear facilities, ballistic missiles, surface-to-surface missiles, air defense systems, and other security assets.
* Allur flugher ísraela var notaður í árásinni.
12 apríl gaf Trump Íran frest til að semja um kjarnorkuverkefni Írana, í nótt var dagur 61. Mér skilst að Ísraelar hafi tekið olíuhreinsastöðvar líka. Íran er illa statt efnahagslega. Og má ekki við að missa neinar tekjur..
The United States has moved to DEFCON 4 alert level.
Official reports indicate that the US has raised its military alert level to DEFCON 4 a level of alert indicating high alertness and reinforcement of global intelligence and surveillance systems. This is an unusual step.
Það er merkilegt að loftvarnir Írana voru svo til engar og Ísraelski flugherinn gerði sitt óáreittur. 10 kjarnorkueðlisfræðingar Írana voru drepnir. Líklega er kjarnorkuáætlun Írana búin að vera. Saudar fordæma árásina... en innst inni, fagna þeir, því Íran er ógn við Saudi Arabíu líka. Þeir gerðu á sínum tíma drónaárásir á olíustöðvar Sauda. 200 herþotur að gera árásir í 1600 km. fjarlægð, Þetta hefur aldrei verið gert áður. Innan Írans gæti komið órói, það hefur lengi kraumað óánægja með Klerkastjórnina. Fari efnahagur landsins lengra niður, þá þýðir það að Klerkastjórnin falli.
Eins og staðan er núna í morgunsárið, þá er loftvarnakerfi Írana úti, fari Íranir i hefndaraðgerðir, þá ætla Ísraelar að taka út alla olíuinnviði. Það þýðir einfaldlega gjaldþrot Írans og innanlandsátök.
Nýlega kom fram: Ísrael hefur verið að framkvæma umfangsmiklar leynilegar aðgerðir innan Írans, þar á meðal stofnun leynilegrar Mossad-stöðvar, ef ég skil þetta rétt? Þá eru þetta drónastöðvar notaðar á Írönsk skotmörk. Þetta margra ára undirbúningur er flókið samstarf milli ísraelskra hersins og leyniþjónustunnar, þar sem mikilvægar upplýsingar eru safnaðar fyrir það sem kallað er Operation Rising Lion. Ef þetta er rétt að Ísraelar hafi komið sér upp drónaaðstöðu í Íran, og notað gegn eldflaugakerfi Írana? Ég skildi fréttina á þann veg. Allavegna þá hefur MOSSAD verið í mörg ár að undirbúa árásina.
Ég sá Mossad liða (myndband) vera að ráðast á eldflaugakerfi Írana, setja sprengjur o.s.frv.. Sennilega er þetta Íranska andspyrnuhreyfingin sem Ísraelar eru í samstarfi við.
Heimildir:
https://youtu.be/UzJg19Z8nlg?si=lsr_JMFbTN73MuR2