Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2025

Rússar þurfa ekki að semja við Trump

 Hef verið að lesa greiningar um hvað sé að fara að gerast, á netinu. Margt sem vantar..... t.d. þá verður ekki samið. Ef það verður samið um frið, þá verður það kraftaverk. Það eru einfaldlega of margar hindranir og mál að leysast til að það gerist. Kraftaverkin gerast, en hef ekki trú á þeim. Byrjum á að greina hindranirnar...

Trump hefur ekki áhuga eða getu vegna kosningaloforða að halda áfram Úkraínustríðinu. Til þess er hann búinn að fjárfesta of mikið í kosningaloforð sín og hann vill láta eftir sig góða arfleið.

Hann mun reyna eitthvað, en Rússar hlusta ekki á hann.

Hér eru ástæður fyrir að Rússar munu ekki semja um frið:

  1. Rússar munu krefast á að fá 300 milljarða frosið fé til baka, áður en samið er eitt eða neitt. Vestrið er nú þegar búnir að ráðstafa hluta af því (vextir) og getur illa greitt til baka.

  2. Rússar munu krefast að efnahagsþvinganir gagnvart þeim muni afléttast (mun ekki verða tekið til greina). Til þess er rétttrúnaðurinn of mikill.

  3. Rússar hafa engann áhuga og vilja ekki semja við umboðslausann Zelensky......það þyrfti þá að fara í að boða til kosninga, ef Rússar eiga að fara að semja við Úkraínsk yfirvöld. Rússar hafa þegar sagt þetta.

  4. Ahverju ættu Rússar að semja? Síðustu fjölmennu svæðin í Donbass eru að falla og núna er bara dreifbýli að ánni Dniper... Úkraínumenn geta ekki haldið víglínunni og BRESTURINN MIKLI er að koma. Þegar víglína Úkraínumanna hrynur.

  5. Úkraína er gjaldþrota og ekki lengur peningasendingar í boði, frá USA og ESB. Bandaríkin eru að byrja viðskipta og tollastríð og mun ekki senda fleiri peninga. ESB er einfaldlega á leið í gjaldþrot.

  6. Úkraínumenn eru á síðustu metrum með orku og orka er skömmtuð. Málið versnaði enn frekar í gær, þegar illa ígrunduð ákvörðun Zelensky að loka fyrir gas til Evrópu. Talað er um að Slóvakar loki fyrir rafmagn til Úkraínu. Nú þegar eru blackout mestallan sólarhringinn og orkuskömmtun. Rússar geta slökkt á síðustu orkuverunum á einum degi. Eina ástæða þess að Rússar hafa ekki slökkt á öllu rafmagnskerfi Úkraínu, er út af því að Úkraína skaffar Transnistriíu rafmagn. En Trannistría vill sameinast Rússlandi. Zelensky notar þetta spil á Rússa.

  7. Trump reynir í smá tíma að semja, en segir síðann....”búinn að reyna.”...”núna ertu einn á báti Zelensky, engin vopn og enginn peningur”. Fórnar Úkraínu. Ef stríðið dregst á langinn í forsetatíð hans, þá mun það vera litið á sem veikleikamerki. Svo hann slaufar Úkraínu...hann vill horfa á Úkraínu í baksýnisspeglinum.

  8. Rússar eru í sókn á allri víglíunni...Úkraínumenn eru á þrotum með herkvaðningu og hafa misst frá 800.000 til milljón manns, á móti 87.000 fallina Rússa. Gríðarlegir yfirburðir Rússa, með stórskotalið, þyrlur, dróna, eldflaugar, herþotur og á öllum sviðum hergagna skýrir muninn.

  9. Rússar hafa svo til tæmt allar varabirgðir Nato. Nato má ekki við að missa fleiri vopn til Úkraínu, þurfa að hugsa til Miðausturlanda og Kína. Rússar framleiða meira vopn en allt Nato til samans, enda eru 3,5 milljónir manna í vopnaframleiðslu á sólarhringsvöktum. Nato veit þetta.

  10. Rússar minnast Minsk samkomulagssins og hafa margoft sagst ekki vilja frysta átökin og láta Úkraínuher byggja sig upp aftur. Og Nato umsókn Zelesnky mun aldrei verða samið um. Hvað varðar “friðargæsluliða” Nato í Úkraínu þá er það þvæla. Ein aðalástæða stríðsins og rauða strik Rússa, var að þeir vildu ekki Nato herstöðvar við landamæri sín.

  11. Afhverju ættu Rússar að vilja semja? Efnahagur þeirra er I blóma og algjörlega óháður Vestrinu. Ekki hægt að skaða Rússland efnahagslega. Úkraínski herinn er á síðustu metrunum og sigurinn er í sjónmáli.

  12. Rússar VERÐA að taka Odessa oblast....því þeir vilja loka á aðgang Úkraínumanna að sjó. Þar með verður Krím ekki lengur fyrir árásum af hafi. Einnig þá eru gríðarlegar olíu og gasbirgðir á hafsbotni. Síðann er það Transnistria vandamálið. Transnistria vill sameinast Rússlandi, og núna eftir að gasleiðslur Úkraínu voru lokaðar í gær, þá er tíminn á þrotum fyrir landræmuna. Ganga núna fyrir kolum og aðeins 60 dagar eftir, þar til allt þrýtur. Að taka Odessa er lykillinn að Transnistria. Rússar líta einnig á Odessa borg sem rússneska, enda stofnaði Katrín mikla borgina fyrir löngu síðann. Það er afar líklegt að Rússar stöðvi, þegar þeir hafa náð Odessa oblast og lokað aðgang Úkraínu að Svarta hafi.

 

Rússar ætla sér að ná markmiðum sínum og munu takast það. Alveg sama hvað Trump eða aðrir segja. Eins og sést á listanum hér að ofan, þá þurfa ansi mörg atriði að smella saman til að hægt sé að semja um frið.

Heimildir:
https://www.youtube.com/watch?v=a8bYxm8URT0

 


Utanríkisráðherra talar við fólk út í bæ í Kiev

 Nokkuð merkileg forgangsröðun nýs utanríkisráðherra, var að hennar fyrsta embættisverk að hringja í umboðslausan “utanríkisráðherra” Úkraínu.

Hún gæti alveg eins verið að hringja einhvern út í bæ í Kiev.

Hvorki Zelensky eða Andrij Sybiha hafa umboð Úkraínsku þjóðarinnar til semja eða betla peninga fyrir hönd Úkraínu.

Íslendingar hafa nú þegar sent milljarða til Úkraínu sem væntanlega hafa verið notaðir í vopnakaup. Enginn veit hvar peningar enda í þessu spilltasta ríki í heiminum.

Dálítið merkilegt að nýbakaður utanríkisráðherra, skuli vera að tala um lýðræði.

Vitandi að í raun þá er Zelensky einræðisherra.

Zelensky neitar að boða til kosninga og skv. Stjórnarskrá úti, þá eru herlög aðeins í gildi í nokkra mánuði og þar með er umboð Zelensky löngu búið.

Grípum aðeins í Facebook færslu utanríkisráðherra.

Á gamlársdag átti ég símafund með Andrij Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu. Úkraínska þjóðin hefur sýnt ótrúlegt hugrekki og þrautseigju í varnarbaráttu sinni gegn innrásarliði Rússa og nauðsynlegt er að styðja þau með öllum tiltækum ráðum.

Sem lýðræðisríki eigum við tilvist okkar undir virðingu fyrir alþjóðalögum og fullveldisrétti ríkja til að taka ákvarðanir um eigin örlög. Ísland getur með engu móti staðið aðgerðarlaust hjá. Við stöndum með úkraínsku þjóðinni, svo einfalt og skýrt er það.”

 

Ég geri væntanlega ráð fyrir að Úkraínska þjóðin vilji forsetakosningar og lýðræði.

Í dag er daglegt brauð að hermenn ganga um göturnar hirða menn úti á götum og neyða í herinn. 2-3 dögum síðar eru þessir menn án nokkrar þjálfunar komnir í fremstu víglínu að berjast við atvinnuhermenn Rússa. Ég hef séð hundruði myndbanda af nauðungar herkvaðningu.

 

Úkraínustríðið byrjaði reyndar 2014, þegar Kiev stjórnin réðst að rétti Rússneskra íbúa Donbass og fór með herlið inn í Donbass, en Donbass íbúar gripu til vopna.

Taka átti af þeim tungumál og búið er að banna Rétttrúnarkirkjuna og útrýma átti Rússneskri menningu. En íbúar austur Úkraínu (núna hluti af Rússlandi), eru frumbyggjar þarna í yfir þúsund ár. Sjálf Úkraína hefur hinsvegar ekki verið til sem fullvalda ríki nema í 34 ár.

 

Til hvers að vera utanríkisráðuneyti ef Íslendingar ætla ekki að vera með sjálfstæða utanríksstefnu? Og fylgja í blindni hörmungarstefnu Brussel embættismannana.

Þessi embættismenn sem enginn hefur kosið eru að koma sambandinu í gríðarlegan orkuskort, En Brussel hefur væntanlega skipað Zelensky að loka síðustu gasleiðslunni til Evrópu.

ESB sem er nú þegar í gríðarlegri efnahagskreppu lendir í enn meiri vandræði og er að borga 3x hærri orku en Bandaríkin og samkeppnisstaða er Evrópu er engin gagnvart Asíu og umheiminum.

Og ofan á þetta ætlar Katar í stríð við ESB vegna rétttrúnaðarstefnu ESB í umhverfismálum og umhverfisofstæki. ESB hótar að setja 5% gjald á allri gassölu Katar út um allann heim. Sem er hrein ótrúleg afskiptasemi, en Katar hóta í staðinn að hætta að selja LNG gas til Evrópu.

Það er bara ekkert víst að Evrópa geti fengið viðbótarorku.

Maður klórar sér í hausnum yfir stjórnarstefnu ESB og hugið ykkur að við höfum á Íslandi tvo flokki í stjórn sem elska Embættismennina í Brussel og vilja láta okkur kjósa inn í þetta deyjandi Sovétríki Evrópu.

 

Síðann eru það hagsmunir Íslendinga...

Þeir hafa lengi verið hunsaðir af utanríkisráðuneytinu.

Færeyingar hafa t.d. Verið með afar sjálfstæða stefnu og taka Færeyska hagsmuni fram yfir Brussel í viðskiptum við Rússland.

Talandi um viðskipti.

Rússar leiða uppbyggingu BRICS þjóðana, þeir eru forystuþjóð þar ásamt Kínverjum.

Og BRICS er með helmingin af mannkyninu. Svo að þetta eru rosalegir hagsmunir fyrir Íslendinga.

Fyrrum utanríkisráðherra rak rússneska sendiherrann úr landi og lokaði sendiráðinu í Moskvu. Sem sagt, það á ekki að stund diplomacíu.

Að slaufa Rússland er sama og að slaufa öll BRICS ríkin

Því BRICS ríkin munu standa saman.

Ísland verður að skoða þetta mjög alvarlega og hugsa um íslenska hagsmuni.

 

Heimildir:

https://www.youtube.com/watch?v=iKMAu6XHFKM

 

 

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband