Bloggfærslur mánaðarins, júní 2025

Valkvíði Trumps - harðlínuleiðin eða ekki

 Í dag eru tilgangslausar friðarviðræður og sýndarmennska í dag, á milli Rússa og Úkraínumanna í Istanbul. Þetta er leikþáttur til að friða vissa hópa harðlínumanna í Bandaríkjunnum og ESB.

Harðlínumenn Nato vilja hertari viðskiptaþvinganir á Rússa, sem munu ekki virka. Það er búið að þrautpína þá leið og Rússland er bara hreinlega sterkari efnahagslega með 4,3% hagvöxt í fyrra og svipaðann í ár....Trump veit að viðskiptaþvinganir virka ekki. En það er samt þrýstingur á hann.

En hvað gerir Trump?

Eina spurningin er.... Trump.... heldur hann áfram stuðningi við Úkraínu, eða mun hann láta sig hverfa og hugsa um stóru myndina?

Þ.e.a.s. hagsmunir Bandaríkjanna á heimsvísu. Engir hagsmunir í Úkraínu. Það er bara staðgengilsstríð.

Trump þarf að stöðva af-dollaravæðingu, og uppbyggingu BRICS undir forystu Rússa. Og hann þarf að koma í veg fyrir of náið samstarf Kína og Rússa, sérstaklega á hernaðarsviðinu. En Rússar hafa langöflugusta vopnabúr í heimi og kjarnorkuvopnabúr. Nú þegar er þegar viðræður Kína og Rússa um náið hernaðarsamstarf. Að Rússar og Kína séu orðnir svo nánir samstarfsaðilar er slæmt fyrir Bandaríska hagsmuni.

Hann þarf því að byggja upp betri samskipti við Putin... gera samstarf landana nánara. Gera Rússa háðari Bandaríkjamönnum. Og mikið hefur verið rætt um að aflétta viðskiptabanninu og láta Rússa fara að nota Dollarann aftur og tengjast Rússum efnahagslega. Sendinefndir hafa verið skipaðar sérstaklega vegna þessa.

Þannig gæti Trump haft eitthvað tangarhald á Rússum, gegnum viðskipti. Eitthvað til að þrýsta á þá. Trump og Rubio hafa hreinlega viðurkennt opinberlega að þeir hafa lítið til að þrýsta á Rússa.

Trump hefur sem sagt ekkert “leverage” tangarhald á Rússlandi. Ekki efnahagslega eða á hernaðarsviðinu. Því verður hann að klára Úkraínustríðið sem er fyrir í heimsmynd hans. Þriggja póla heimur þar sem Bandaríkin, Rússland og Kína hafa sín áhrifasvæði.

En hvað gerir Trump? Heldur hann áfram stuðningi við Zelensky og tapað stríð í Úkraínu? Og fer þannig í sögubækurnar sem forsetinn sem missti allt samband við Rússland og Úkraína fell undir hans vakt? Það gæti skýrt afhverju hann vill semja um frið. Hann færi þá í sögubækurnar sem friðarforsetinn sem endaði staðgengilsstríð Bidens.

Fari hann hinsvegar harðlínumanna leiðina og býr til fleiri viðskiptaþvinganir á Rússa (sem geta ekki virkað). Þá fer hann í sögubækurnar með misheppnaða utanríkisstefnu. Hann þarf sárlega að vera í samskiptum við Rússa um fjölda heimsmála. Það eru hagsmunir um allann heim... Úkraína er aukaatriði í heimsmyndinni og engir Bandarískir hagsmunir þar. Nema þá kannski hagsmunir Biden fjölskyldunnar í Úkraínu og viðskipti fjölskyldunnar þar.

Trump gæti gengið frá stríðinu óskaddaður, með því að draga sig í burtu frá friðarviðræðum... og hann myndi segja:

Þetta er Biden stríð, hann byrjaði stríðið, ég reyndi að stilla til friðar. Núna þarf ég að hugsa um heimsmyndina og einbeita mér að Bandarískum hagsmunum.”

Trump er í tollastríði. Þar er áhugi hans og hagsmunir Bandaríkjanna. Land með 37 Trilljarða skuldir og í efnahagsvandamál. Mun hann hlusta á harðlínumenn í Washington og Brussel embættismannaklíkunnar? Lausnin er svo augljós að hann hlýtur að sjá að hann ætti að draga sig frá friðarviðræðum, og ganga í burtu, eins og hann hefur oft hótað. Forsetatíð og sögubækurnar munu verða skrifuð eftir hvaða ákvörðun hann tekur

P.s. varðandi árásir Úkraínumanna á flugvelli Rússa í gær, og þeir misstu 13 sprengjuflugvélar..þá er ýmislegt að koma í ljós. Afhverju voru Rússar svo gálausir að láta sprengjuflugvélar vera undir berum himni, en ekki flugskýlum í miðju stríði? Jú, skýringin er að Bandaríkjamenn og Rússar gerðu sáttmála sín á milli, en sáttmálin segir að sprengjuflugvélar á ákveðnum flugvöllum skuli vera undir berum himni og hægt sé að skoða frá gervihnöttum. Zelensky vissi um þetta og Bandaríkjamönnum var sagt frá fyrirhuguðum árásum fyrirfram. En... þeir gerðu EKKERT... þrátt fyrir að verið væri að brjóta sáttmálann.



 

 


Lestar harmleikurinn í Rússlandi – hryðjuverk

 Lægra er ekki hægt að leggjast en að ráðast kerfisbundið gegn óbreyttum borgurum... nokkuð sem er gegn Genfarsáttmálanum.

Sprenging á brúm í Brjansk og Kursk héruðum:
Lestarslys í Bryansk héraði:
Vegbrú sprengdist beint fyrir ofan á járnbrautarteinana — lestin skall á rústunum;
7 manns létust, 69 farþegar slösuðust, þar á meðal 8 mánaða gamalt barn (sem var flutt til Moskvu til aðhlynningar);
Rannsókn á hryðjuverkum hefur verið hafin og vill landsstjóri Bryjansk meina um hryðjuverk sé að ræða

Brúarhrun í Kursk héraði:
Rannsóknarmenn staðfestu að brúin var vísvitandi sprengd — líklega með tilbúnum sprengibúnaði;
Ein af stoðunum skemmdist, sem olli því að spennan hrundi;
Lestarlest og þrír járnbrautarvagnar fóru af sporinu;
 Einn maður slasaðist — lestarstjórinn slasaðist á fæti.

Atvikin sem tengdust sprengingum á járnbrautum í héruðunum Bryansk og Kursk hafa verið flokkuð sem hryðjuverk, að sögn rússneska rannsóknarnefndarinnar.

 

Zelensky er því komin í hryðjuverk gegn óbreyttum borgurum. Þarna er vísvitandi verið ráðist að óbreyttum borgurum. Zelensky verðu liklega flokkaður sem hryðjuverkamaður og eltur uppi slíkur af Rússum. Þolinmæði Rússa hlýtur að þrjóta.

Ekki fyrir löngu, þá tók Zelensky óbreytta borgara sem gísla frá Kursk og notaði í fangaskiptum við Rússa. Slíkt er algjörlega gegn Genfarsáttmálunum að nota óbreytta borgara sem gísla. Alþjóðasamfélagið sagði ekkert, engin gagnrýni..

Í fyrra voru 150 óbreyttir borgarar drepnir í verslunarmistöð í Moskvu, Crocus City Hall, böndin bárust að Úkraínsku leyniþjónustunni og yfirmanni hennar Butanov.

 Hetjan Zelensky er sem sagt kominn í hryðjuverk og verður liklega meðhöndlaður sem slíkur. Hann er umboðslaus forseti síðann í fyrra og hefur því enga vernd sem þjóðhöfðingi.. hann er bara óbreyttur borgari og einræðisherra sem er kominn í hryðjuverk.

Heimildir:

https://en.wikipedia.org/wiki/Crocus_City_Hall_attack

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband